Efnahagsyfirlit VR er gefið út í tengslum við mánaðarlega stjórnarfundi félagsins. Yfirlitið er samantekt á hagtölum og öðru efni sem tengist vinnumarkaðs- og kjaramálum og er tilgangurinn að upplýsa og fræða félagsmenn um stöðu þjóðhagsmála hverju sinni.
Júní 2020
Hvað ef það verður seinni bylgja?
Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, birti nýlega tvær ólíkar spár um áhrif Covid-19 faraldursins á hagvöxt á Íslandi þar sem annað hvort er gert ráð fyrir því að Covid gangi yfir í einni eða tveimur bylgjum. Ef veiran gengur yfir í einni bylgju spáir stofnunin 10% samdrætti á þessu ári og 4,6% hagvexti á því næsta. Ef faraldurinn blossar hins vegar aftur gerir OECD ráð fyrir 11% samdrætti og 3% hagvexti á næsta ári. Til samanburðar má nefna að Seðlabanki Íslands spáir 8% samdrætti í ár og 4,8% hagvexti á næsta ári.
Ítarlegar er fjallað um margvísleg áhrif Covid-19 í nýjasta Efnahagsyfirliti VR.