Almennar fréttir - 08.03.2026
Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna
Í dag er alþjóðlegur baráttudagur kvenna en hann á yfir hundrað ára sögu. VR hefur áratugum saman verið í fararbroddi í baráttunni fyrir réttindum kvenna á vinnumarkaði og slær hvergi slöku við. Fjárhagslegt sjálfstæði er algjör grunnforsenda kvenfrelsis og þótt mikill árangur hafi náðst í draga úr kynbundnum launamun eru konur enn aðeins með um 80% af heildarlaunum karla. Misskipt fjölskylduábyrgð ræður þar miklu og því er eitt af stærstu baráttumálum samtímans tengt samspili leikskóla og fæðingarorlofs annars vegar og atvinnuþátttöku hins vegar. Enn er bil milli leikskóla og fæðingarorlofs óbrúað og á undanförnum misserum hefur hvert sveitarfélagið á fætur öðru gert grundvallarbreytingar á þjónustu leikskóla sem koma niður á vinnandi foreldrum og sérstaklega mæðrum.
VR áréttar kröfu sína að sveitarfélög snúi af þessari braut og hvetur stjórnvöld til að hraða aðgerðum við að brúa bilið. Samfélag jafnréttis er einfaldlega betra samfélag.
Gleðilegan alþjóðlegan baráttudag kvenna!