Almennar fréttir - 20.03.2026
Aðalfundur fjallar um breytingar á Sjúkrasjóði VR
Tillögur að breytingum á reglugerð Sjúkrasjóðs VR verða lagðar fyrir aðalfund félagsins miðvikudaginn 25. mars. Markmiðið með þessum breytingum er að bregðast við versnandi afkomu sjóðsins og gera honum kleift að takast á við skuldbindingar sínar.
Tryggingafræðileg úttekt var gerð á Sjúkrasjóði VR á síðasta ári. Niðurstaðan sýnir glögglega að sjóðurinn er ekki sjálfbær. Hann hefur ekki fjárhagslegt bolmagn til að bregðast við óvæntum útgjöldum eða leggja til framlag í VR varasjóð. Þá hefur sjóðurinn ekki það svigrúm sem hann þarf til að byggja upp sjóð fyrir hærri útgjöldum framtíðar en félagsfólk VR er að stórum hluta ungt fólk og framtíðarskuldbindingar miklar. Eins hafa breytingar sem gerðar voru á almannatryggingakerfinu á síðasta ári áhrif á réttindi og rekstur sjóðsins.
Stjórn VR hefur fjallað um stöðu sjóðsins og leggur til að gerðar verðir breytingar til að tryggja áframhaldandi þjónustu við sjóðsfélaga, þessar helstar:
- Réttur til greiðslu dagpeninga verði að hámarki sex mánuðir í stað sjö áður. Rétturinn verði tvískiptur, að fjórum mánuðum liðnum er hægt að sækja um dagpeninga fyrir allt að tvo mánuði til viðbótar.
- Sjúkrasjóður VR greiði 80% launa að teknu tilliti til dagpeningagreiðslna frá Sjúkratryggingum Íslands.
- Dagpeningar atvinnuleitenda verði skilyrtir greiðslu iðgjalds í sjóðinn.
- Gerðar verði breytingar á rétti eldra félagsfólks til dánarbóta.
Við hvetjum félagsfólk til að mæta á aðalfundinn. Sjá ítarlegri umfjöllun um tillögurnar og skráningu á aðalfundinn hér.