Almennar fréttir - 12.03.2026
Aðalfundur VR 2026
Aðalfundur VR 2026 verður haldinn miðvikudaginn 25. mars nk. kl. 19:30 á Hótel Reykjavík Grand. Fundurinn verður bæði stað- og fjarfundur. Vinsamlega skráið ykkur á fundinn fyrir kl. 12:00 á hádegi á fundardegi – sjá hér.
Allar kosningar á fundinum verða rafrænar og fundargögn sömuleiðis. Mikilvægt er að öll sem mæta á fundinn hafi meðferðis viðeigandi búnað (tölvu eða snjalltæki) til þess að geta tekið þátt í kosningum.
Dagskrá:
- Hefðbundin aðalfundarstörf
- Innlögn í VR varasjóð
- Lagabreytingar
- Reglugerðarbreytingar