Almennar fréttir - 26.03.2026
Aðalfundur VR samþykkir breytingar á Sjúkrasjóði
Aðalfundur VR, sem haldinn var miðvikudagskvöldið 25. mars 2026, samþykkti ályktun þar sem þungum áhyggjum er lýst af stöðu efnahagsmála og skorað á stjórnvöld að leiða aðila saman til lausnamiðaðs samtals um veginn fram á við í erfiðri stöðu. Á fundinum voru samþykktar breytingar á lögum félagsins sem og breytingar á starfsemi og þjónustu Sjúkrasjóðs VR í ljósi erfiðrar stöðu hans.
Fundurinn var afar fjölmennur og umræður fjörlegar. Í ávarpi sínu fór Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, yfir liðið starfsár stjórnar og stiklaði á stóru um þær breytingatillögur sem lágu fyrir fundinum. Hún fjallaði um stöðuna sem upp er komin í efnahagsmálum en allar líkur eru á að forsendur kjarasamninga bresti í haust. Launafólk hafi undirgengist hófsamar launahækkanir í þeirri von að verðbólga og vextir myndu lækka. Það hafi hins vegar ekki gengið eftir, því hvorki fyrirtækin né hið opinbera hafi staðið við sitt. „Á liðnum vikum höfum við setið undir linnulausum áróðri um að sú alvarlega staða sem hér hefur teiknast upp í hagkerfinu sé öðru fremur komin til vegna launahækkana. Sumir ganga meira að segja svo langt að kenna kjarasamningsbundnum hækkunum um, en ég veit ekki hvaða hagfræði getur fengið það út að 3,5% launahækkanir geti skilað sér í 5,2% verðbólgu,“ sagði Halla í ávarpi sínu.
Halla sagði stjórn VR vel undirbúna fyrir næstu viðræður, hvort sem þær verða í haust eða að tveimur árum liðnum. Ef kjarasamningar eigi að halda verði að koma til móts við þá hópa sem bera mestra byrðar - barnafólk, leigjendur og fólk með háar húsnæðisskuldir. „Við þurfum að sjá í verki vilja fyrirtækja og stjórnvalda til að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að lágmarka skaðann,“ sagði formaður VR.
Breytingar á lögum VR
Aðalfundurinn samþykkti breytingar á lögum félagsins á þá leið að kynjaflétta í kosningum til stjórnar taki tillit til þess að skráð kyn eru fleiri en tvö. Þá var samþykkt að ekki verði beitt kynjafléttu í kosningum til varastjórnar sem og að fjölga varamönnum úr þremur í fjóra.
Breytingar á Sjúkrasjóði og VR varasjóði
Miklar umræður urðu um tillögur stjórnar um breytingar á Sjúkrasjóði VR vegna versnandi stöðu sjóðsins. Hækkandi veikindatíðni undanfarin ár hefur veikt stöðu sjóðsins og er nú svo komið að hann er ekki sjálfbær. Gerðar verða breytingar á greiðslutímabili dagpeninga sem verður stytt um mánuð og tvískipt í ljósi nýlegra breytinga á almannatryggingakerfinu en margir VR félagar sem fá dagpeningagreiðslur frá sjóðnum fá hærri greiðslur úr lífeyriskerfi TR. Breytingar á tímabili greiðslna úr Sjúkrasjóði gera félaginu fært að tryggja betur hag þeirra. Þá voru samþykktar breytingar á útreikningi dagpeninga. Þessar breytingar munu taka gildi þann 1. maí. Þá voru samþykktar breytingar á rétti eldri félaga til dánarbóta sem mun falla niður tveimur árum eftir að viðkomandi varð eldri félagi skv. ákvæðum laga VR.
Og þá voru samþykktar breytingar á VR varasjóði til að auka sveigjanleika félagsfólks sem nú getur nýtt sjóðinn í þágu barna sinna.
Ályktun fundarins
Aðalfundurinn samþykkti harðorða ályktun þar sem lýst var þungum áhyggjum af stöðu efnahagsmála og stjórnvöld hvött til að leiða aðila saman til lausnamiðaðs samtals um veginn fram á við í erfiðri stöðu en líkur eru á að forsendur kjarasamninga bresti í haust. Í ályktuninni segir m.a.: „Aðalfundur VR áréttar að félagið er vel undirbúið og tilbúið til kjaraviðræðna í haust og mun hvergi hvika í hagsmunabaráttu fyrir sitt félagsfólk. Aðalfundur telur þó vænlegt að leita allra leiða til að afstýra hörðum kjaradeilum. Til að svo megi verða þurfa atvinnurekendur og stjórnvöld að axla sína ábyrgð og viljann þarf að sýna í verki næstu mánuði. Mestu skiptir að mæta þeim hópum sem hafa borið þyngstar byrðar í hávaxtaástandinu undanfarin ár, einkum barnafólki, leigjendum og launafólki með háar húsnæðisskuldir. Að þrengja áfram að þessum hópum með áframhaldandi hávaxtastefnu eða niðurskurði á þjónustu mun engu skila í baráttunni við verðbólguna.“
Sjá ályktunina í heild sinni hér.
Gullmerki VR
Þrjú fengu afhent gullmerki VR á fundinum í þakklætisskyni fyrir farsælt starf fyrir félagið. Þau eru Sigurður Sigfússon, sem sat í stjórn félagins í þrjá áratugi, Steinar J. Kristjánsson sem sat í stjórn í 16 ár og Auður Búadóttir sem starfaði fyrir VR í 26 ár.

Frá vinstri: Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, Sigurður Sigfússon, Auður Búadóttir og Steinar J. Kristjánsson.