Vefspjall
Hleður upp...
Vr Fanar 1

Almennar fréttir - 26.03.2026

Aðalfundur VR skorar á stjórnvöld að efna til samtals um efnahagsmál

Aðalfundur VR, haldinn í Reykjavík 25. mars 2026, lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu efnahagsmála. Allt útlit er fyrir að forsendur kjarasamninga bresti í haust og illa hefur gengið að vinna bug á þrálátri verðbólgu. Aðalfundur áréttar að verðbólgan er að stofninum til heimatilbúinn vandi sem á rætur sínar í áralangri óstjórn í húsnæðismálum, hagnaðarsókn stórra fyrirtækja og gjaldskrárhækkunum ríkis og sveitarfélaga. Yfirvofandi orkukreppa í heiminum mun hins vegar gera illt verra og getur haft langtímaafleiðingar fyrir lífskjör á Íslandi, ef ekkert er að gert.

Aðalfundur VR bendir á að félagsfólk VR tók áhættu þegar það undirgekkst kjarasamninga með lágum launahækkunum á verðbólgutímum árið 2024. Þetta var gert í trausti þess að stjórnvöld myndu standa við gefin fyrirheit og fyrirtæki halda aftur af sér í verðhækkunum. Hvorugt hefur raungerst. 

Aðalfundur VR áréttar að félagið er vel undirbúið og tilbúið til kjaraviðræðna í haust og mun hvergi hvika í hagsmunabaráttu fyrir sitt félagsfólk. Aðalfundur telur þó vænlegt að leita allra leiða til að afstýra hörðum kjaradeilum. Til að svo megi verða þurfa atvinnurekendur og stjórnvöld að axla sína ábyrgð og viljann þarf að sýna í verki næstu mánuði. Mestu skiptir að mæta þeim hópum sem hafa borið þyngstar byrðar í hávaxtaástandinu undanfarin ár, einkum barnafólki, leigjendum og launafólki með háar húsnæðisskuldir. Að þrengja áfram að þessum hópum með áframhaldandi hávaxtastefnu eða niðurskurði á þjónustu mun engu skila í baráttunni við verðbólguna. 

Aðalfundur VR skorar á stjórnvöld að leiða aðila saman til lausnamiðaðs samtals um veginn fram á við í erfiðri stöðu. Stór fyrirtæki sem stýra verðlagningu í landinu þurfa að draga úr arðsemiskröfum sínum á meðan við siglum í gegnum orkukreppuna og náum tökum á verðbólgunni. Til álita kemur að beita verðþaki til að ná settu  marki, ekki síst þegar kemur að olíu en að öðrum kosti mun hækkun olíuverðs flæða beint og óbeint inn í verðlag og valda aukinni verðbólgu og þaðan yfir í húsnæðiskostnað fólks í formi vaxta og verðbóta. Stjórnvöldum ber að gæta hagsmuna þeirra hópa sem verða fyrir versta högginu en með þeim hætti mætti draga úr þörfinni á almennum launahækkunum í erfiðu efnahagsástandi. Aðalfundur telur að sveitarfélög eigi að afturkalla háar gjaldskrárhækkanir, einkum á hita, rafmagni og leikskólagjöldum. Þá þarf raunverulegar aðgerðir í húsnæðismálum, bæði til langs og skamms tíma. 

Ef við leggjumst öll á árarnar er hægt að ná árangri fyrir samfélagið allt. En launafólk ætlar ekki að sitja eitt undir árunum áfram. Það er fullreynt. 

Samþykkt á aðalfundi VR, 25. mars 2026