Almennar fréttir - 13.06.2025
Stjórn VR krefur forsætisráðherra um að draga úr launahækkunum ráðamanna
Stjórn VR mótmælir harðlega hækkunum á launum æðstu ráðamanna ríkisins og skorar á forsætisráðherra að endurskoða afstöðu sína til þeirra. Stjórn telur óboðlegt að á sama tíma og almennt launafólk er krafið um hófsemd til að bregðast við verðbólgu sem það ber enga ábyrgð á, lúti ráðamenn öðrum lögmálum.
Samkvæmt gildandi kjarasamningum hækka laun VR félaga um 3,5% árið 2025 eða um 23.750 krónur að lágmarki. Laun alþingismanna, ráðherra, dómara og annarra ráðamanna hækka hins vegar um 5,6% og mun strípað þingfararkaup hækka um 85 þúsund krónur á mánuði. Þannig nemur hækkun þingfararkaups meira en þrefaldri lágmarkshækkun á launum VR félaga.
Í aðdraganda síðustu kjarasamninga steig Seðlabankastjóri fram og lagði áherslu á að launahækkanir yrðu hóflegar. Á sama tíma var verðbólga mikil vegna óstjórnar í húsnæðismálum og gróðasóknar fyrirtækja og stýrivextir gríðarlega háir. Launafólki var því tjáð að það ætti að taka á sig byrðarnar með því að fella sig við lágar launahækkanir á miklum óvissutímum. Þegar kjarasamningar við kennara og lækna voru í vinnslu og stýrivextir enn í hæstu hæðum áréttaði Seðlabankastjóri að þeir yrðu að fylgja sömu launastefnu. En nú, þegar laun ráðamanna og hans sjálfs hækka um allt að þrefalt hærri krónutölu en laun almenns launafólks, heyrist ekki múkk!
Sem forsætisráðherra steig Bjarni Benediktsson fram fyrir skjöldu fyrir ári síðan og lagði til þak á launhækkanir ráðamanna í takt við kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Núverandi forsætisráðherra hefur hins vegar gefið út að svo verði ekki en að fyrirkomulag launahækkana verði endurskoðað. Stjórn VR telur einhlítt að gera þurfi hvoru tveggja; tryggja með lögum að launhækkanir ráðamanna nú verði í takti við kjarasamninga á almennum markaði og leiða slíkt fyrirkomulag í lög til framtíðar.
Ráðamenn eiga að deila kjörum með þjóðinni, hafi þeir á annað borð áhuga á að njóta trausts hennar.
Stjórn VR, 13. júní 2025