Almennar fréttir - 25.06.2025
Atvinnuleysistryggingar ræddar á fundi formanns VR og félagsmálaráðherra
Formaður VR, Halla Gunnarsdóttir, lagði áherslu á andstöðu félagsins við áform stjórnvalda um styttingu tímabils atvinnuleysistrygginga á fundi með Ingu Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra í dag, miðvikudaginn 25. júní 2025. Markmið fundarins var að kynna ráðherra helstu áherslur stjórnar VR í húsnæðis- og félagsmálum launafólks og fjölskyldna.
Stjórn VR og trúnaðarráð félagsins gagnrýna harðlega áform stjórnvalda að stytta tímabil atvinnuleysistrygginga um allt að heilt ár. Halla hvatti ráðherrann til að falla frá þessum áformum og benti á að félagið geti ekki fellt sig við að réttindi launafólks séu skert á þennan hátt. Atvinnuleysi sé lítið á Íslandi en í sveiflukenndu efnahagsumhverfi þurfi réttarstaða fólks að vera skýr. Bættum virkniúrræðum sé vel hægt að koma á án þess að skerða tímabil atvinnuleysistrygginga.
Á fundinum var einnig rætt um húsnæðismálin sem að mati félagsins eru langstærsta hagsmunamál launafólks í landinu. Hápólitísk vaxtastefna Seðlabankans hafi skaðað stöðu launafólks og varpað byrðunum á herðar skuldara og leigjenda. Bæta verði réttarstöðu leigjenda og koma böndum á þann markað. Halla benti á að forgangsmál stjórnvalda hljóti að vera að tryggja lauanfólki og fjölskyldum aðgang að húsnæði á sanngjörnum kjörum, hvort sem er húsnæði til leigu eða eignar.
Þá ræddi Halla einnig hugmyndir að auknum valdheimildum ríkissáttasemjara sem myndu vega að samingafrelsi launafólks. Breytingar á vinnumarkaðslöggjöfinin verði að vinna í sátt við verkalýðshreyfinguna.
Að fundinum loknum sagði Halla fundinn hafa verið góðan og ráðherra sýnt sjónarmiðum VR skilning. „Það er ljóst að ráðherra er umhugað um kjör fólks og hefur ekki hug á að standa að neinum breytingum sem vega að réttindum vinnandi fólks, þar með talið hvað varðar valdheimildir ríkissáttasemjara. Við í VR teljum eftir sem áður að ekki hafi komið fram haldbær rök fyrir skerðingu á rétti launafólks til atvinnuleysistrygginga og munum áfram fylgja eftir því hagsmunamáli sem varðar fjölmarga félaga í VR. Við munum einnig fylgja húsnæðismálunum eftir af miklum þunga, enda snerta þau kjör alls okkar félagsfólks.“