Vefspjall VR
Garri Skrifstofa 20

Almennar fréttir - 23.09.2025

Fékkst þú aukinn orlofsrétt til uppsöfnunar?

Í síðustu kjarasamningum var samið um aukinn orlofsrétt fyrir félagsfólk VR sem starfar í verslunum, á skrifstofu og í þjónustustörfum samkvæmt aðalkjarasamningum félagsins við SA og FA. Frá og með 1. maí 2025 er orlofsréttur til ávinnslu vegna töku orlofs eftir 1. maí 2026 eftirfarandi:

  • Lágmarksorlof er 24 virkir dagar og orlofslaun eru 10,17% á öll laun.
  • Félagsfólk sem hefur unnið 6 mánuði í sama fyrirtæki og er orðið 22 ára eða hefur unnið í 6 mánuði í sama fyrirtæki eftir framhaldsskólapróf fær 25 orlofsdaga og eru orlofslaun 10,64%.
  • Eftir 5 ár í sömu starfsgrein er orlof 26 dagar og orlofslaun 11,11%.
  • Eftir 4 ár í sama fyrirtæki eða 10 ár í sömu starfsgrein eru orlofsdagar 28 og orlofslaun 12,07%.
  • Eftir 6 ár í sama fyrirtæki er orlof 30 dagar og orlofslaun 13,04%.

Ef orlof er reiknað í hverjum mánuði og það lagt inn á banka er mikilvægt að fylgjast með því að orlofsprósentan hafi hækkað frá og með 1. maí síðastliðnum í samræmi við þessar breytingar en orlofsprósentuna má sjá á launaseðlinum.

Ef orlofsstundir eru birtar á launaseðli þarf að gæta að því að orlofsstundirnar á launaseðlinum hafi hækkað til samræmis við breytingarnar hér að ofan frá og með 1 maí. Einstaklingur sem er með 24 daga orlofsrétt og vinnur 100% vinnu í heilan mánuði í dagvinnu fær samkvæmt kjarasamningi 17,08 orlofsstundir á mánuði í afgreiðslu en 16,2 klst. á skrifstofu. Ef rétturinn er 25 dagar, eru orlofsstundirnar 17,87 í afgreiðslu en 16,94 klst. á skrifstofu.

Félagsfólk sem lauk framhaldsskólaprófi sl. vor þarf að koma upplýsingum um framhaldsskólaprófið til síns næsta yfirmanns til að fá aukinn orlofsrétt. Réttinn fær það þá eftir 6 mánuði í starfi hjá sama fyrirtæki eftir að framhaldsskólaprófi hefur verið lokið. Þessi réttur á við um öll sem lokið hafa framhaldsskólaprófi. Hver og einn VR félagi verður að koma upplýsingum um það til atvinnurekanda til að njóta þeirra réttinda. Það sama á við um félagsfólk sem hefur unnið  í 5 eða 10 ár í sömu starfsgrein. Skila þarf staðfestingu til atvinnurekanda til að fá aukinn orlofsrétt. Það má til dæmis gera með því að skila inn greiðslusögu félagsgjalda sem sjá má á Mínum síðum á vr.is. eða fá frá öðrum stéttarfélögum sem greitt hefur verið til. 

Aðilar geta samið sín á milli um fleiri orlofsdaga og hækka þá orlofslaunin með tilliti til þess. Ef samið er um aukin orlofsréttindi umfram það sem fram kemur í kjarasamningi er mikilvægt að það sé gert með skriflegum hætti.

Áður gilti að áunninn réttur vegna starfa í sama fyrirtæki endurnýjaðist eftir þriggja ára starf hjá nýju fyrirtæki. Frá og með 1. maí 2024 þarf einstaklingur einungis að vinna í tvö ár hjá nýju fyrirtæki til að öðlast þann rétt sem hann hafði hjá fyrrum atvinnurekanda.

Frekari upplýsingar um orlofsrétt má sjá hér. 

Eftirfarandi breytingar gilda sem lágmarksréttindi fyrir leiðsögufólk sem starfa samkvæmt kjarasamningi leiðsögufólks við SA: 

Frá og með 1. maí 2025 er orlofsréttur til ávinnslu vegna töku orlofs eftir 1. maí 2026 eftirfarandi:

  • Lágmarksorlof er 24 virkir dagar og orlofslaun eru 10,17% á öll laun.
  • Leiðsögufólk með 5 ára starfsreynslu skal hafa 27 daga orlof og orlofslaun 11,59%
  • Leiðsögufólk sem starfað hefur í 10 ára skal hafa 30 daga orlof og orlofslaun 13,04%

Frekari upplýsingar um orlofsrétt leiðsögufólks má sjá hér.