Almennar fréttir - 04.02.2026
Fjölsóttur fundur VR og SI um húsnæðismál
Á fjölmennum fundi VR og Samtaka iðnaðarins í gær, þriðjudaginn 3. febrúar 2026, kom fram ákall til stjórnvalda um skýra sýn í húsnæðismálum og að þau taki að sér viðameira hlutverk þegar kemur að málaflokknum. Húsnæðismál eru eitt stærsta kjaramál vinnandi fólks og hefur VR lagt mikla áherslu á húsnæðisöryggi launafólks. Ekki hefur verið samstaða um aðkomu ríkis og sveitarfélaga að húsnæðisuppbyggingu en fundurinn var sammála um að ríkur vilji væri til samstarfs og samvinnu til að auðvelda og flýta ferli íbúðabygginga. Og í ávarpi félags- og húsnæðismálaráðherra, Ragnars Þórs Ingólfssonar, kom fram vilji ríkisstjórnarinnar að skoða hvernig koma megi til móts við sveitarfélögin þegar kemur að innviðauppbyggingu.
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, bindur vonir við að þessi skýri samhljómur milli stærsta stéttarfélags og stærstu atvinnurekendasamtaka landsins nái eyrum stjórnvalda og að þau hlýði kallinu um að taka að sér meiri yfirsýn og jafnvel yfirstjórn í húsnæðismálum. „Húsnæði er stærsti áhrifaþáttur verðbólgunnar. Það þarf að hefja húsnæðismálin úr farvegi átaksverkefna og tryggja langtímasýn með það að markmiði að allir geti komið sér þaki yfir höfuðið á viðráðanlegum kjörum.“
Frá orðum til athafna
Fundinn, sem bar yfirskriftina Samstaða um úrbætur í húsnæðismálum, sátu fulltrúar frá nánast öllum hliðum húsnæðisuppbyggingar auk launafólks og samtaka iðnaðarins, allt frá verktökum og arkitektum að sveitarfélögum, fasteignafélögum og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Fjallað var um stöðuna á húsnæðismarkaði og framtíðarhorfur og leitað svara við spurningunni hvernig við komumst frá orðum til athafna. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, setti fundinn og Halla Gunnardóttir fjallaði um húsnæðismál frá sjónarhóli launafólks. Kristín Amalía Líndal, hagfræðingur hjá HMS, ræddi stöðu húsnæðismála í upphafi árs og Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, fór yfir gjaldtökuheimildir sveitarfélaga við húsnæðisuppbyggingu. Karl Þráinsson, framkvæmdastjóri Framkvæmdafélagsins Arnarhvols, sagði reynslusögur af vettvangi og Sigurður Stefánsson, framkvæmdastjóri Aflvaka þróunarfélags, fjallaði um áhrif öldrunar þjóðarinnar á húsnæðisþörf.
Í pallborði urðu líflegar umræður með þátttöku fundargesta. Saga Guðmundsdóttir, aðalhagfræðingur Sambands íslenskra sveitarfélaga, Gylfi Gíslason, framkvæmdastjóri JÁVERKS, Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs íbúðafélags, og Arnhildur Pálmadóttir, arkitekt hjá s. ap arkitektum sátu í pallborði auk þeirra Höllu og Sigurðar.