Almennar fréttir - 15.05.2025
Fyrirtæki ársins 2025 kynnt í Hörpu
Niðurstöður í könnun VR á Fyrirtæki ársins 2025 voru kynntar við hátíðlega athöfn í Hörpu fimmtudaginn 15. maí. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, afhentu viðurkenningar til fyrirtækja í þremur stærðarflokkum.
Þau fyrirtæki sem skáru fram úr og hljóta nafnbótina Fyrirtæki ársins 2025 eru:
Í flokki stórra fyrirtækja, þar sem starfa 70 eða fleiri:
- APRÓ
- Límtré Vírnet
- NetApp
- Sjóvá
Í flokki meðalstórra fyrirtækja, þar sem starfa 30-69:
- Hringdu
- Orkan
- Reykjafell
Í flokki lítilla fyrirtækja, þar sem starfa færri en 30:
- Arango
- Mjúk Iceland
- Hótel Vellir
Könnun VR á Fyrirtæki ársins er stærsta vinnumarkaðsrannsókn á Íslandi og á sér yfir aldarfjórðungs sögu. Gallup lagði könnunina fyrir og sá um úrvinnslu niðurstaðna.
Þau fyrirtæki sem uppfylltu skilyrði um lágmarkssvörun og tryggðu öllu starfsfólki sínu þátttökurétt (ekki aðeins VR félaga) komu til greina í vali á Fyrirtæki ársins og voru um 160 talsins. Auk fyrirtækja ársins voru viðurkenningar veittar til fimmtán efstu fyrirtækjanna í hverjum stærðarflokki og voru þau útnefnd Fyrirmyndarfyrirtæki 2025.
Þá voru tvenn aukaverðlaun veitt. Þrjú fyrirtæki fengu nafnbótina Fjölskylduvænustu fyrirtækin 2025 og þrjú fyrirtækin hlutu Fræðsluviðurkenningu VR 2025.
Nánar má lesa um niðurstöður og sjá lista yfir fyrirtækin hér.