Almennar fréttir - 13.05.2025
Húsnæðismálin efst á baugi á fundi formanns VR og forsætisráðherra
Formaður VR, Halla Gunnarsdóttir, lagði áherslu á mikilvægi þess að launafólk hafi aðgengi að húsnæði á viðráðanlegu verði á fundi sínum með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í dag, þriðjudaginn 13. maí. Markmiðið með fundinum var að kynna fyrir ráðherra helstu áherslumál félagsins þegar kemur að stöðu launafólks og fjölskyldna í landinu.
Halla sagði húsnæðismálin eitt helsta kjaramál launafólks á Íslandi og löngu tímbært að hætta að líta á húsnæði sem fjárfestingarvöru, þak yfir höfuð teljist til mannréttinda. Þorri launafólks búi við óhóflegan húsnæðiskostnað, hvort sem er í eigin húsnæði eða leiguhúsnæði. Koma verði böndum á leigumarkaðinn og tryggja að byrðarnar af óáran í efnahagsmálum séu ekki lagðar á herðar leigjenda og skuldara.
Halla lýsti einnig yfir andstöðu félagsins við tillögur stjórnvalda um að stytta tímabil atvinnuleysistrygginga, sem og hugmyndir um að auka valdheimildir ríkissáttasemjara. Slík áform krefjist formlegs samráðs við verkalýðshreyfinguna og VR getur ekki fellt sig við að skerða eigi réttindi launafólks og veikja stöðu þess á vinnumarkaði.
Að fundi loknum sagði Halla samtalið hafa verið jákvætt og uppbyggilegt. „Forsætisráðherra hefur ríkan skilning á þeim aðkallandi verkefnum sem við stöndum frammi fyrir og snúa að kjörum launafólks. Hún er jafnframt meðvituð um mikilvægi þess að vinna í góðu samstarfi við verkalýðshreyfinguna. Við í VR munum eftir sem áður halda stjórnvöldum við efnið og tryggja að þau uppfylli loforð sem gefin hafa verið í tengslum við kjarasamninga og taki ákvarðanir út frá almannahag, ekki sérhagsmunum.“