Vr Utsynismyndir 6

Almennar fréttir - 25.06.2025

Könnun um húsnæðisaðstæður aðfluttra

Félagsfólk VR sem hefur erlent ríkisfang fær á næstu dögum senda til sín könnun í tölvupósti þar sem spurt verður um húsnæðisaðstæður aðfluttra.

Könnunin er samstarfsverkefni HMS og stéttarfélaganna VR, Eflingar og Einingar-Iðju og er markmið hennar að afla gagna sem nýtast til að bæta aðstæður innflytjenda þegar kemur að húsnæðismálum. 

Þátttaka í könnuninni tekur um fimm mínútur og er fullum trúnaði heitið. Gert er ráð fyrir að könnunin standi yfir í tvær vikur.

Könnunin verður send í tölvupósti frá rannsóknarfyrirtækinu Prósent á félagsfólk VR sem hefur erlent ríkisfang.