Almennar fréttir - 05.03.2026
Kosningar til stjórnar VR 2026 - 2027
Allsherjaratkvæðagreiðsla meðal félagsfólks VR vegna kjörs stjórnar VR hefst kl. 10:00 í dag, að morgni fimmtudagsins 5. mars, og lýkur kl. 12:00 á hádegi fimmtudaginn 12. mars.
Atkvæðagreiðslan er rafræn á vr.is. Valið er milli tíu frambjóðenda til sjö sæta í aðalstjórn VR. Kjörtímabilið er eitt ár, 2026 – 2027.
Frambjóðendur eru:
- Birgitta Ragnarsdóttir
- Bjarni Þór Sigurðsson
- Gabríel Benjamin
- Jóhann Már Sigurbjörnsson
- Jónas Yngvi Ásgrímsson
- Júlíana Einarsdóttir
- Kristjana Þorbjörg Jónsdóttir
- Paula A. Sánchez
- Sigríður Lovísa Jónsdóttir
- Tómas Elí Guðmundsson
Hér getur þú kynnt þér frambjóðendur.
Hvernig kýst þú stjórn VR?
- Aðgangur að rafrænum atkvæðaseðli er hér „Kosningar í VR 2026” og frá forsíðu vr.is.
- Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum.
- Atkvæðaseðillinn opnast með nánari upplýsingum um hvernig þú átt að kjósa.
Reykjavík, 5. mars 2026
Kjörstjórn VR