Kvennaárfb 1X1

Almennar fréttir - 18.06.2025

Kvennavaka - Stórtónleikar Kvennaárs 2025 

Kvennaár býður konum og kvárum til Kvennavöku í Hljómskálagarði að kvöldi kvenréttindadagsins 19. júní 2025. Kvennavakan hefst kl. 19:00 og er í senn stórtónleikar, samkomustaður og fögnuður í tilefni þess að ákveðinn hópur kvenna á Íslandi fengu kosningarétt fyrir 110 árum.

Fram koma: 

  • Bríet 
  • Reykjavíkurdætur 
  • Heimilistónar 
  • Countess Malaise 
  • Mammaðín 

Dagskránni lýkur með samsöng undir stjórn Guðrúnar Árnýjar.  

Kynnar eru Sandra Barilli og Sindri "Sparkle". 

Matarvagnar verða á staðnum. 

Upplýsingar um aðgengismál eru á kvennaar.is/adgengi 

Sjá nánar hér.