Vefspjall VR
Jolaskogur Frettamynd

Almennar fréttir - 04.11.2025

Miðasala á Ævintýri í Jólaskógi með VR hefst á fimmtudaginn 

Miðasala á Ævintýri í Jólaskógi með VR hefst kl. 10:00 fimmtudaginn 6. nóvember 2025.
VR gefur félagsfólki sínu tækifæri til að upplifa ævintýraferð í Jólaskógi í aðdraganda jólahátíðarinnar í ár.

Sýningin fer fram í Guðmundarlundi og standa jolasveinar.is að sýningunni. Félagsfólk getur valið um að koma dagana 27., 28. eða 29. nóvember en með því að dreifa skemmtuninni á nokkra daga gefst fleirum tækifæri til að njóta en ella.

Miðasala fer fram á Mínum síðum á vef VR. Miðar verða seldir með afslætti og kostar miðinn einungis 500 kr.

Hámarksmiðafjöldi fyrir hvern VR félaga er 6 stk. Athugið að miðafjöldi er takmarkaður.