Almennar fréttir - 10.03.2026
Nær helmingur félagsfólks VR vill nýjan gjaldmiðil
Jafnmargir VR félagar eru hlynntir og andvígir aðild Íslands að Evrópusambandinu eða 38%. Rétt innan við helmingur - eða 47% - er hlynntur upptöku nýs gjaldmiðils. Þetta má lesa úr niðurstöðum könnunar sem gerð var meðal meðal félaga í VR fyrr á þessu ári.
Í könnuninni voru þrjár spurningar lagðar fyrir svarendur:
- Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ert þú að Ísland hefji aftur aðildarviðræður við Evrópusambandið
- Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ert þú aðild Íslands að Evrópusambandinu?
- Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ert þú upptöku nýs gjaldmiðils á Íslandi?
41% vill hefja aftur aðildarviðræður
Marktækt meiri stuðningur er með upptöku nýs gjaldmiðils en aðildaviðræðum eða inngöngu í ESB. Annars eru fylkingar nokkuð jafnar. Um 41% sögðust hlynnt því að hefja aftur aðildarviðræður, 36% voru því andvíg en 23% merktu við hvorki hlynnt né andvíg. Eins og fyrr sagði voru 38% hlynnt aðild að Evrópusambandinu og jafnmargir á móti en 24% sögðust hvorki hlynnt né andvíg. Þá sögðu 47% hlynnt upptöku nýs gjaldmiðils en 29% voru því andvíg. Eins og í hinum tveimur spurningunum merkti um fjórðungur við valmöguleikann hvorki né.
Um könnunina
VR gerir reglulega kannanir meðal félagsfólks og er þessi könnun hluti þess. Hún var gerð í janúar 2026 meðal úrtaks greiðandi félagsfólks, 18 ára og eldri, sem hafði skráð netfang í félagakerfinu. Alls bárust 809 svör.