Almennar fréttir - 08.01.2026
Opið fyrir umsóknir orlofshúsa
Opnað hefur verið fyrir umsóknir orlofshúsa fyrir sumarið 2026 og verður opið fyrir umsóknir til 31. janúar.
Ekki skiptir máli hvenær á tímabilinu félagsfólk sækir um, það á allt jafn mikla möguleika á að vera dregið út. Félagsfólk sem fær úthlutað orlofshúsi hefur til 12. febrúar að ganga frá greiðslu í gegnum Mínar síður. Sama regla verður viðhöfð og áður að félagsfólk sem hefur tekið orlofshús á leigu einhvern tímann síðustu þrjú sumur getur ekki sótt um á tímabilinu.
Þegar gengið hefur verið frá greiðslu fyrir úthlutun verður orlofseignum sem ekki fóru í útleigu aftur úthlutað þann 16. febrúar. Séu orlofshús laus eftir að úthlutun lýkur getur félagsfólk sótt um þau hús þann 26. febrúar kl. 10.
Hér má sjá nánar um úthlutunarreglur og skilmála leigu orlofshúsa.