Vefspjall
Hleður upp...
Svignaskard 38 23

Almennar fréttir - 23.02.2026

Opnað fyrir bókanir á lausum orlofshúsum 26. febrúar

Fimmtudaginn 26. febrúar verður opnað fyrir bókanir á orlofshúsum sem ekki var úthlutað í sumar. Hægt er að bóka á orlofsvef VR frá kl. 10:00 að morgni. Allt félagsfólk getur sótt um laus orlofshús, óháð því hvort það hefur fengið hús leigt síðastliðin þrjú sumur eða ekki.

Við hvetjum félagsfólk til að kynna sér fyrirfram hvaða hús og tímabil eru laus en það er hægt á orlofvef VR.