Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Almennar fréttir - 11.06.2020
Sumartilboð til félagsmanna VR
Í byrjun maí óskaði VR eftir tilboðum fyrir félagsmenn sína frá ferðaþjónustuaðilum og svörin stóðu ekki á sér.
Félagsmenn verða að skrá sig inn til að nálgast afsláttarkóða, slóð eða aðrar leiðbeiningar til að geta nýtt sér tilboðin.
Hægt er að nýta uppsafnaðan rétt í sjóðum VR t.d. vegna orlofsgistingar, tómstundanámskeiða og líkamsræktar. Einnig geta VR félagar fengið niðurgreiðslu frá VR gegn framvísun kvittunar vegna leigu á ferðavögnum af viðurkenndum leiguaðilum. Umsókn um niðurgreiðslu á ferðavögnum er að finna undir „Meira“.
VR hvetur félagsmenn til að nýta sér tilboðin og ferðast innanlands í sumar!