Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Ragnar Vr Portret 2019 5

Almennar fréttir - 07.12.2021

Sýnum verslunarfólki virðingu

Enn og aftur hefur borið á slæmri framkomu viðskiptavina í garð afgreiðslufólks í verslun. Síðustu misseri hafa verið afgreiðslufólki afar erfið og krefjandi á tímum heimsfaraldursins. Það er í raun óskiljanlegt hversu lítið tillit hefur verið tekið til mikilvægi framlínustarfa eins og í verslun.

Það er varla hægt að gera sér í hugarlund hvernig staðan hefði verið ef almenningur hefði ekki haft nær óheftan aðgang að nauðsynjavöru og annarri þjónustu.

Álag hefur aukist mikið á starfsfólk vegna mikillar aukningar á veltu sem nær svo hámarki í aðdraganda stórhátíða. Ef það er ekki nóg þá þarf verslunarfólk alla jafna að bera grímu og vera í hönskum meira og minna á vinnutíma.

Það er ekki ábætandi að viðskotaillir viðskiptavinir taki togstreitu og pirring dagsins með sér út í búð og láti það bitna á starfsfólki verslana, sem síst eiga það skilið. Tala nú ekki um gagnvart unga fólkinu okkar sem er að taka sín fyrstu skref á vinnumarkaði. Viljum við ekki að upplifun þeirra sé jákvæð og uppbyggileg?

Það vill engin sjá barnið sitt niðurbrotið eftir vinnudag vegna slæmrar framkomu viðskiptavina.

Það eru erfiðir tímar í okkar samfélagi. Tímar óvissu og takmarkana, sóttkvía og einangrunar. Þá er ennþá mikilvægara að standa saman með kærleika, virðingu og þakklæti að vopni.

Sýnum framlínufólki í verslun þá virðingu sem það á skilið. Þökkum því fyrir að standa vaktina og gegna þessu mikilvæga og ómissandi hlutverki í okkar samfélagi.