Almennar fréttir - 19.06.2025
Upplýsingar vegna netárásar á hýsingaraðila VR
VR bárust upplýsingar um árás netglæpahóps á kerfi Wise undir lok síðasta árs en fyrirtækið veitir VR þjónustu á sviði upplýsingatækni og hýsingar (sjá hér frétt á vef VR). Wise hefur nú lokið við greiningu á afleiðingum árásarinnar eins og þær snúa að VR. Wise hýsir persónugreinanleg gögn frá VR sem einkum lúta að bankafærslum milli VR og félagsfólks og greiðslum úr sjóðum VR og er möguleiki á að slík persónugreinanleg gögn frá VR hafi verið afrituð í árásinni. Ljóst er að árásaraðili hafði aðgang að gögnunum á meðan á árásinni stóð, en Wise hefur ekki getað staðfest hvort gögnin hafi verið afrituð eða ekki. Þessi gögn eru m.a. númer bankareikninga félagsfólks, greiddir reikningar sem og upplýsingar um færslur Orlofssjóðs og Sjúkrasjóðs VR.
- Upplýsingar úr Sjúkrasjóði varða upphæðir sjúkradagpeninga, dánarbætur og styrkja.
- Upplýsingar úr Orlofssjóði varða greiðslur félagsfólks vegna bókana í orlofskerfi VR.
Heilsufarslegar upplýsingar félagsfólks eru almennt ekki hýstar hjá Wise, hvorki læknisvottorð félagsfólks né skýringar með sjúkradagpeningagreiðslum. Á þessu er undantekning þegar kemur að greiðslu styrkja Sjúkrasjóðs, en skýringar á styrkgreiðslum geta annaðhvort verið glasafrjóvgun eða ferðakostnaður.