Almennar fréttir - 03.03.2026
Vantar þig aðstoð við skattframtalið?
Félagsfólki VR býðst að nýta sér einstaklingsaðstoð sérfræðings KPMG við skattframtalið. Aðstoðin er í boði 9. og 10. mars frá kl. 8:30 og til 16:00. Hver tími verður 15 mínútur.
- 9. mars – aðstoð hjá VR, 9. hæð í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7
- 10. mars – aðstoð í gegnum Teams eða síma
Þú færð áminningu um námskeiðið þegar nær dregur aðstoðinni á tölvupóstfangið sem þú ert með skráð hjá VR. Þú getur séð hvaða netfang þú ert með skráð á Mínum síðum á vr.is. Þú getur einnig smellt á hnapp við skráningu til að setja viðburðinn í dagatalið þitt.