Um hvað verður kosið?
20. grein laga VR fjallar um kosningu til forystu félagsins. Í allsherjarkosningu árið 2026 verður kosið um sjö sæti í stjórn til eins árs í einstaklingskosningu. Þá verður jafnframt kosið í 41 sæti í listakosningu til trúnaðarráðs til eins árs, ef mótframboð berst gegn framboðslista félagsins.
Framboðsfrestur er til kl. 12:00 á hádegi, miðvikudaginn 11. febrúar 2026.
Eins árs kjörtímabil 2026 - 2027
Athugið að kjörtímabilið er nú eitt ár, 2026 -2027. Á aðalfundi 2024 var samþykkt að lengja kjörtímabil aðalmanna í stjórn VR úr tveimur árum í fjögur og varamanna úr einu ári í tvö. Kjörtímabil trúnaðarráðs VR var einnig lengt úr tveimur árum í fjögur. Þá var jafnframt samþykkt bráðabirgðaákvæði í lögunum um afbrigði kosninga 2026 til að kosning frá og með árinu 2027 verði í samræmi við samþykkt um lengra kjörtímabil. Í kosningum 2026 er því kosið í sjö sæti í aðalstjórn til eins árs. Ekki er kosið í varastjórn. Þá er kosið í 41 sæti í trúnaðarráði í listakosningu til eins árs.
Hvernig á að bjóða sig fram?
Skv. 5. gr. laga VR nýtur allt fullgilt félagsfólk kjörgengis til trúnaðarstarfa innan félagsins, með þeim undantekningum sem getið er um í 3. gr. laganna en samkvæmt þeirri grein njóta unglingar 15 ára og yngri, sjálfstætt starfandi á vinnumarkaði og þeir sem hættir eru störfum vegna aldurs eða örorku ekki kjörgengis.
Þá er vakin athygli á að skv. 11. gr. laga VR skulu stjórnarmenn starfa á starfssviði VR, vera fjár síns ráðandi, uppfylla almenn hæfisskilyrði og mega ekki á sl. 5 árum hafa hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað. Stjórnarmenn mega ekki eiga meira en 5% hlut í hlutafélagi sem er í atvinnurekstri á starfssviði félagsins. Það sama á við þó eignarhlutur þeirra sé undir 5%, fari maki eða börn með ráðandi hlut í slíku fyrirtæki. Stjórnarmenn mega ekki vera starfandi sem framkvæmdastjórar þar sem réttarstaða framkvæmdastjóra telst sú sama og atvinnurekanda. Frambjóðendur til stjórnar þurfa á grundvelli þessa lagaákvæðis að láta fylgja framboðum sínum útfyllt eyðublað með upplýsingum um kjörgengi sem og tengda aðila, sjá neðar.
Skil framboðsgagna
Skrifleg meðmæli 15 VR félaga þarf vegna einstaklingsframboðs til stjórnar. Til að framboðslisti til trúnaðarráðs sem borinn er fram gegn lista uppstillingarnefndar VR sé löglega fram borinn þarf skrifleg meðmæli 1% VR félaga, eða 422, sem og skriflegt samþykki frambjóðenda á listanum. Kosið er um 41 sæti í trúnaðarráð.
Fyrirmyndir að meðmælendablöðum má nálgast hér að neðan sem og eyðublað um kjörgengi og tengda aðila. Hægt er að fylla eyðublöðin út á vefnum og prenta út en skila þarf þeim undirrituðum til kjörstjórnar.
- Frambjóðandi og meðmælendur vegna framboðs til stjórnar
- Kjörgengi frambjóðenda til stjórnar
- Frambjóðendur og meðmælendur vegna framboðs lista til trúnaðarráðs
Vakin er athygli á því að framboðum þurfa að fylgja upplýsingar um nafn og kennitölu frambjóðenda. Enn fremur óskar kjörstjórn eftir því að framboðum fylgi upplýsingar um símanúmer og netfang frambjóðenda til stjórnar og forsvarsmanna lista.
Framboðum ásamt fullnægjandi fjölda meðmælenda og öðrum gögnum skal skila til kjörstjórnar VR, annaðhvort rafrænt á netfangið kjorstjorn@vr.is (skönnuð gögn) eða á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, 103 Reykjavík, merkt Kjörstjórn VR.
4. febrúar 2026
Kjörstjórn VR