Vefspjall
Hleður upp...
03. feb.
14:30- 17.00 Hótel Reykjavík Grand
Radstefna Vidburdur

Fundir

Samstaða um úrbætur í húsnæðismálum

SI og VR standa fyrir fundi þriðjudaginn 3. febrúar kl. 14.30-17.00 á Grand Hótel Reykjavík – Háteig 4. hæð

Húsnæðisuppbygging er eitt stærsta úrlausnarefni samfélagsins í dag. Hátt húsnæðisverð, skortur á langtímasýn og flókið ferli hafa áhrif á heimili, atvinnulíf og framtíðarþróun samfélagsins. Hvað þarf að breytast til að tryggja öruggt húsnæði og hvernig komumst við frá orðum til athafna?

Setning

  • Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, setur fundinn.
  • Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, fjallar um húsnæðismál frá sjónarhóli launafólks.

Dagskrá - erindi

  • Staða húsnæðismála í upphafi árs
    Kristín Amalía Líndal, hagfræðingur hjá HMS
  • Gjaldtökuheimildir sveitarfélaga við uppbyggingu húsnæðis
    Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI
  • Reynslan af vettvangi: hvað tefur framkvæmdir?
    Karl Þráinsson, framkvæmdastjóri Framkvæmdafélagsins Arnarhvols
  • Áhrif öldrunar þjóðarinnar á húsnæðisþörf samfélagsins
    Sigurður Stefánsson, framkvæmdastjóri Aflvaka þróunarfélags

Pallborð

Frá samstöðu til aðgerða – hvað þarf að gerast núna?
Halla Gunnarsdóttir og Sigurður Hannesson stýra pallborði:

  • Saga Guðmundsdóttir, aðalhagfræðingur Sambands íslenskra sveitarfélaga
  • Gylfi Gíslason, framkvæmdastjóri JÁVERKs
  • Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs íbúðafélags
  • Jóhanna Helgadóttir, meðeigandi og fagstjóri skipulagsmála hjá Nordic Office of Architecture

Lokaávarp

  • Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, flytur lokaávarp.

Smelltu hér til að skrá þig á fundinn.