17. sep.
8.30-15:45 Salur VR á 9. hæð í Húsi verslunarinnar og rafrænt á Teams
Námskeið Okt 2024

Námskeið

Námskeið fyrir félagsfólk VR - Starfslok - tímamót og tækifæri

17. september kl. 8:30-15:45
Leiðbeinendur: Þóra Jónsdóttir, lögmaður og sérfræðingur í lífeyrismálum ásamt sérfræðingum frá Auðnast

Rannsóknir hafa sýnt fram á, að ef fólk fær tækifæri til að undirbúa starfslok sín af kostgæfni, eru meiri líkur á því að tímamótin auki ánægju og vellíðan komandi ára.

Á þessu námskeiði fá þátttakendur tækifæri til að undirbúa starfslok sín en góður undirbúningur er grunnforsenda fyrir ánægjulegum starfslokum. Á starfslokanámskeiði Auðnast er stuðst við líkanið ,,okkar daglega líf” sem samanstendur af mikilvægum þáttum sem fræðin telja vert að rýna við tímamót sem þessi. Farið verður yfir hvern þátt fyrir sig með fyrirlestrum, verkefnum og umræðum. Einnig fer hluti námskeiðsins í að ræða allt það helsta er við kemur lífeyrismálum, Tryggingastofnun og fleira hagnýtt.

Námskeiðið verður haldið í sal VR á 9.hæð í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7. Morgunmatur og hádegismatur í boði fyrir þau sem mæta á staðinn. Einnig er hægt að taka þátt í gegnum Teams. Veldu þann möguleika sem hentar þér hér að ofan.

Við skráningu færðu áminningu á netfangið sem þú ert með skráð hjá VR. Ef þú skráir þig sem þátttakanda rafrænt færðu sendan hlekk í tölvupóstinum. Þú getur séð hvaða netfang þú ert með skráð á Mínum síðum á vr.is.