Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
vr_logo-2.jpg

Almennar fréttir - 01.03.2019

VR boðar atkvæðagreiðslu um verkfall

Stjórn VR samþykkti á fundi sínum þann 25. febrúar 2019, að boða til leynilegrar atkvæðagreiðslu um verkfall hjá hópbifreiðafyrirtækjum á félagssvæði VR og í gistiþjónustu á höfuðborgarsvæðinu og í Hveragerði.

Aðeins starfsmenn fyrirtækja, sem verkfallið mun taka til, munu greiða atkvæði um verkfall.

Kjarasamningur VR og Samtaka atvinnulífsins rann út þann 31. desember 2018 og er nýr kjarasamningur ekki í sjónmáli. Atvinnurekendur höfnuðu kröfum félagsins og var deilunni vísað til ríkissáttasemjara þann 21. desember 2018. Þann 21. febrúar, mat félagið það svo að viðræður hefðu reynst árangurslausar, þrátt fyrir milligöngu ríkissáttasemjara.

Sjá kröfugerð félagsins og tilboð Samtaka atvinnulífsins hér.

VR hefur því ákveðið að efna til leynilegrar atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls á meðal félagsmanna VR sem starfa hjá hópbifreiðafyrirtækjum á félagssvæði VR og hjá eftirfarandi fyrirtækjum með staðsetningu í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ og Hveragerði:

  • Fosshótel Reykjavík ehf.
  • Íslandshótel hf.
  • Flugleiðahótel ehf.
  • Cabin ehf.
  • Hótel Saga ehf.
  • Miðbæjarhótel/Centerhotels ehf.
  • Hótel Klettur ehf.
  • Örkin Veitingar ehf.
  • Keahótel ehf.
  • Hótel Frón ehf.
  • Hótel 1919 ehf.
  • Hótel Óðinsvé hf.
  • Hótel Leifur Eiríksson ehf.
  • Hótel Smári ehf.
  • Fjörukráin ehf. (Hotel Viking)
  • Hótel Holt Hausti ehf.
  • Hótelkeðjan ehf.
  • CapitalHotels ehf.
  • Kex Hostel
  • 101 (einn núll einn) hótel ehf.

Aðeins félagsmenn VR í ofangreindum fyrirtækjum og hópbifreiðafyrirtækjum á félagssvæði VR munu kjósa um verkfall.

Kosið er um að samþykkja eða hafna verkfallsaðgerðum samkvæmt eftirfarandi dagsetningum:

  1. Frá klukkan 00:01 til klukkan 23:59 þann 22. mars 2019 (1 dagur)
  2. Frá klukkan 00:01 þann 28. mars 2019 til klukkan 23:59 þann 29. mars 2019 (2 dagar)
  3. Frá klukkan 00:01 þann 3. apríl 2019 til klukkan 23:59 þann 5. apríl 2019 (3 dagar)
  4. Frá klukkan 00:01 þann 9. apríl 2019 til klukkan 23:59 þann 11. apríl 2019 (3 dagar)
  5. Frá klukkan 00:01 þann 15. apríl 2019 til klukkan 23:59 þann 17. apríl 2019 (3 dagar)
  6. Frá klukkan 00:01 þann 23. apríl 2019 til klukkan 23:59 þann 25. apríl 2019 (3 dagar)
  7. Ótímabundin vinnustöðvun frá klukkan 00:01 þann 1. maí 2019.