Ellilífeyrisþegar sem voru félagsmenn VR áður en þeir hættu störfum geta fengið ýmsa fyrirgreiðslu hjá VR þó þeir séu ekki lengur á vinnumarkaði. VR býður félagsmönnum á aldrinum 63-72 ára, sem eru að huga að starfslokum eða eru nýlega hættir að vinna á námskeið. Námskeið eru auglýst á vef VR, í VR blaðinu og í tölvupósti.
Helstu réttindi fullgildra eldri félaga eru sem hér segir:
Varasjóður
Fullgildir eldri félagar geta sótt um styrk svo fremi að þeir eigi inneign í VR varasjóði.
Sjúkrasjóður
Aðstandendur geta sótt um dánarbætur hafi félagsmaðurinn verið félagi síðustu 5 árin áður en hann fór á eftirlaun.
Orlofssjóður
Fullgildir eldri félagar geta sótt um orlofshús svo fremi þeir hafi verið félagsmenn síðustu 5 árin áður en þeir fóru á eftirlaun.
Starfsmenntasjóðir
Fullgildir eldri félagar geta sótt um styrk vegna starfstengdra námskeiða og náms í 12 mánuði og tómstundastyrk í 36 mánuði eftir að hætt er að greiða félagsgjöld.
Annað
Fullgildir eldri félagar fá sent VR blaðið.