Almennar fréttir - 06.03.2023
Allsherjaratkvæðagreiðsla VR
Allsherjaratkvæðagreiðsla meðal félagsfólks VR vegna kjörs formanns og stjórnar VR, skv. 20. gr. laga félagsins, hefst kl. 09.00 miðvikudaginn 8. mars nk. og lýkur kl. 12.00 á hádegi miðvikudaginn 15. mars 2023.
Atkvæðagreiðslan er rafræn á vr.is. Valið er milli tveggja frambjóðenda til formanns VR og 16 frambjóðenda til stjórnar VR. Merkja skal við mest sjö frambjóðendur í stjórnarkosningum. 
Hvernig kýst þú formann og stjórn VR
1. Smelltu á „Kosningar í VR 2023” á vr.is 
2. Skráðu þig inn með Íslykli eða rafrænum skilríkjum 
3. Atkvæðaseðill opnast með upplýsingum um hvernig þú átt að kjósa 
Frambjóðendur til formanns, í stafrófsröð 
Elva Hrönn Hjartardóttir 
Ragnar Þór Ingólfsson 
Frambjóðendur til stjórnar, í stafrófsröð 
Árni Konráð Árnason 
Gabríel Benjamin 
Halla Gunnarsdóttir 
Helga Ingólfsdóttir 
Jennifer Schröder 
Jóhanna Gunnarsdóttir 
Kristjana Þorbjörg Jónsdóttir 
Nökkvi Harðarson 
Ólafur Reimar Gunnarsson 
Sigríður Hallgrímsdóttir 
Sigurður Sigfússon 
Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir 
Vala Ólöf Kristinsdóttir 
Þorsteinn Þórólfsson 
Þórir Hilmarsson 
Ævar Þór Magnússon
Kjörstjórn VR 
6. mars 2023
 
                 
                                                