Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Vr Fanar 6

Almennar fréttir - 08.02.2021

Frambjóðendur til formanns og stjórnar VR

Framboðsfrestur vegna formanns- og stjórnarkjörs VR rann út á hádegi í dag þann 8. febrúar 2021.

Kjörstjórn VR bárust tvö einstaklingsframboð til formanns og eru það framboð núverandi formanns VR, Ragnars Þórs Ingólfssonar og framboð Helgu Guðrúnar Jónasdóttur.

Kjörstjórn VR hefur úrskurðað 11 einstaklingsframboð til stjórnar VR fyrir kjörtímabilið 2021-2023 löglega fram borin. Alls verður kosið til sjö sæta í stjórn og þriggja í varastjórn.

Frambjóðendur til stjórnar VR eru, í stafrófsröð:
Arnþór Sigurðsson
Harpa Sævarsdóttir
Helga Ingólfsdóttir
Jón Steinar Brynjarsson
Jónas Yngvi Ásgrímsson
Kristjana Þorbjörg Jónsdóttir
Sigmundur Halldórsson
Sigríður Hallgrímsdóttir
Sigurður Sigfússon
Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir
Þórir Hilmarsson

Ekkert mótframboð barst gegn lista trúnaðarráðs VR í trúnaðarráð félagsins og telst hann því löglega kjörinn.

Kjörstjórn VR mun auglýsa tilhögun kosninga nánar þegar nær dregur. Nánari upplýsingar um frambjóðendur og áherslur þeirra verða birtar á vef VR fljótlega.