Almennar fréttir - 27.02.2026
Fulltrúar VR í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
Fulltrúaráð VR hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna, LIVE, samþykkti á fundi þann 25. febrúar skipan tveggja aðalmanna VR í stjórn sjóðsins og eins varamanns. Skipað er til fjögurra ára í senn og er helmingur fulltrúa VR í stjórninni skipaður annað hvert ár ásamt varamanni.
Aðalmenn VR í stjórn LIVE fyrir kjörtímabilið 2026 – 2030 voru skipuð þau Arnar Guðmundsson og Drífa Snædal og Ólafur Reimar Gunnarsson til vara. Fyrir í stjórninni sitja Stefán Sveinbjörnsson og Guðmunda Ólafsdóttir fyrir hönd VR. Atvinnurekendur skipa svo fjóra aðalmenn og einn varamann í stjórnina.
Auglýst var eftir stjórnarfólki og sóttu alls 19 um, 5 konur og 14 karlar. Umsækjendur fóru í gegnum matsferli og viðtöl. Í kjölfarið lagði uppstillingarnefnd félagsins til tvo aðalmenn og einn varamann og staðfesti fulltrúaráðið þær tillögur á fundi sínum, eins og fyrr sagði.