Vefspjall
Hleður upp...
VR Deildleidsagnar BANNER

Almennar fréttir - 02.03.2026

Nám í leiðsögn hlýtur vottun

Fjórir skólar á Íslandi hlutu á dögunum vottun fyrir nám sitt í leiðsögn frá samræmismatsstofunni BSI á Íslandi. Vottunin er eftir staðli ÍST EN 15565:2008 sem tekur til krafna um hæfni leiðsögufólks og þjálfunar. Það  var deild leiðsögufólks í VR sem fór þess á leit við BSI á Íslandi að meta nám fræðsluaðila en þeir skólar sem voru metnir og stóðust matið eru Endurmenntun Háskóla Íslands, Ferðamálaskóli Íslands, Menntaskólinn í Kópavogi og Símenntun Háskólans á Akureyri.

Stjórn deildar leiðsögufólks í VR bauð fulltrúum skólanna til sín og veitti þeim viðurkenningu í tilefni þessa merka áfanga. 

Frá vinstri: Jóna Svandís Þorvaldsdóttir (EHÍ), Halldór Kolbeins (formaður deildar), Margrét Kristín Jónsdóttir (HA), Ingibjörg Elín Jónsdóttir (HA), Kristín Hrönn Þráinsdóttir (MK) og Friðjón Sæmundsson (Ferðamálaskóli Íslands)