Vefspjall
Hleður upp...
3H5A1262

Almennar fréttir - 05.03.2026

Opið fyrir umsóknir orlofshúsa að vetri til

Opnað hefur verið fyrir umsóknir orlofshúsa fyrir veturinn 2026-2027 og verður opið fyrir umsóknir til 15. mars. Ekki skiptir máli hvenær á tímabilinu félagsfólk sækir um, það á allt jafn mikla möguleika á að vera dregið út. Félagsfólk sem fær úthlutað orlofshúsi hefur til 22. mars að ganga frá greiðslu í gegnum Mínar síður.

Orlofshúsunum verður úthlutað á þessum tímum:

  • Haust- og vetrarfrí (21. október - 28. október 2026 og 17. - 24. febrúar 2027)
  • Jól 2026
  • Áramót 2026 – 2027
  • Páskar 2027
  • Skíðatímabil á Akureyri frá 1. febrúar til 1. apríl 2027 (orlofshús í Hálöndum og Skipagötu)

Allt fullgilt félagsfólk getur sótt um að fá úthlutað orlofshúsi á þessum tímum, og skiptir ekki máli þó viðkomandi hafi leigt orlofshús veturna áður eða ekki. Athugið að hámarks gistináttafjöldi að vetri er 12 nætur.

Sjá ítarlegri reglur og skilmála hér.