Vefspjall
Hleður upp...
Pusl Frettamynd

Almennar fréttir - 04.02.2026

Vilt þú starfa í forystu VR?

Kjörstjórn VR auglýsir eftir einstaklingsframboðum til stjórnar félagsins og listaframboðum í trúnaðarráð kjörtímabilið 2026 – 2027.

Framboðsfrestur er til kl. 12:00 á hádegi, miðvikudaginn 11. febrúar.

Um er að ræða annars vegar einstaklingsframboð til sjö sæta í stjórn og hins vegar listaframboð fyrir 41 sæti í trúnaðarráð. Skrifleg meðmæli 15 VR félaga þarf vegna einstaklingsframboðs til stjórnar. Til að listi vegna trúnaðarráðs sem borinn er fram gegn lista uppstillinganefndar VR sé löglega fram borinn þarf skrifleg meðmæli 422 VR félaga sem og skriflegt samþykki frambjóðenda á listanum. Sjá nánar um framboð og kosningar til forystu félagsins í gr. 20 laga VR

Athygli er vakin á því að samkvæmt lögum VR er einstaklingi óheimilt að skipa sæti samtímis á lista til trúnaðarráðs og vera í framboði til stjórnar félagsins.

Hér má sjá eyðublöð vegna framboða og ítarlegri upplýsingar um framboð til stjórnar og trúnaðarráðs.

Framboðum og framboðslistum skal skilað til kjörstjórnar á á netfangið kjorstjorn@vr.is eða á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7.

Kjörstjórn VR veitir frekari upplýsingar í síma 510 1700 eða með tölvupósti til kjorstjorn@vr.is.

4. febrúar 2026
Kjörstjórn VR