Vefspjall
Hleður upp...
Vrbladid 1 2026 Frettamynd

Almennar fréttir - 03.03.2026

VR blaðið er komið út!

Fyrsta tölublað ársins 2026 af VR blaðinu er komið út og er því dreift til félagsfólks í pósti.

Kosningar í VR hefjast þann 5. mars næstkomandi og eru frambjóðendur til stjórnar 10 talsins að þessu sinni. Frambjóðendur kynna sig og áherslur sínar í blaðinu og einnig á vefnum okkar. 

Hver verða áhrif gervigreindar á vinnumarkaðinn? Í blaðinu er rætt við dr. Eszter Czibor, hagfræðing sem rannsakar vísindi, nýsköpun og tækni út frá félagslegu og efnahagslegu sjónarhorni.  

Þær breytingar sem hafa verið gerðar á þjónustu leikskóla milli kosninga eru bæði ólýðræðislegar og óréttlátar. Enn fremur eru þær á skjön við skuldbindingar sveitarfélaganna gagnvart kjarasamningum og hækkanir hafa sums staðar numið tugum prósenta. Þetta segir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, í grein sem hún skrifar í blaðið. 

Skoðar þú launaseðilinn þinn? Það er aldrei of oft minnt á nauðsyn þess að fara reglulega yfir launaseðla og ganga úr skugga um að rétt laun séu greidd og öll viðeigandi gjöld dregin af launum.

Nýtt hlaðvarp VR – H fyrir hagfræði – fjallar um efnahagsmál út frá sjónarhóli launafólks. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, og Ásgeir Brynjar Traustason, ritstjóri Vísbendingar og hagfræðingur, kryfja hugmyndir á sviði hagfræðinnar og draga fram tengsl milli kenninga og daglegs lífs.

Leiðari formanns, viðtal við trúnaðarmanninn, krossgátan ásamt fleiri föstum liðum má að sjálfsögðu finna eins og venjulega í blaðinu.

Við minnum félagsfólk á að það getur afþakkað blaðið í prentaðri útgáfu og skráð sig fyrir rafrænu eintaki á Mínum síðum.