Almennar fréttir - 12.02.2026
VR hvetur velferðarnefnd til að senda frumvarp um atvinnuleysistryggingar til baka til ríkisstjórnar
Tillögur stjórnvalda um breytingar á atvinnuleysistryggingum fela í sér alvarlega skerðingu á réttindum launafólks og veikja stöðu þeirra sem standa höllum fæti á vinnumarkaði. Tillögurnar eru illa rökstuddar og unnar án samráðs við verkalýðshreyfinguna. Þetta kemur fram í umsögn VR um frumvarp til laga um breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um vinnumarkaðsaðgerðir.
Í tillögum stjórnvalda er gert ráð fyrir því að bótatímabilið verði stytt úr 30 mánuðum í 18 mánuði og ávinnsluskilyrði hert. Fátæklegar greiningar liggja hins vegar til grundvallar þeim breytingum sem settar eru fram í frumvarpinu, að mati VR, en helsta skýringin virðist vera áform um niðurskurð á útgjöldum ríkisins. Það sé gagnrýnivert að ráðast í slíkar breytingar á grundvallarafkomutryggingakerfi vinnumarkaðarins að því er virðist eingöngu í hagræðingarskyni fyrir afkomu ríkissjóðs.
Í umsögninni bendir VR á að skoða þurfi breytingar á atvinnuleysistryggingum í samhengi við þjónustu og úrræði sem í boði eru. Í frumvarpi stjórnvalda skorti greiningar á aðgerðum, áhrifum og fjármögnum slíkra úrræða sem og stöðu atvinnulausra sem verða fyrir barðinu á þeim breytingum sem hér er verið að leggja til.
VR leggur til að velferðarnefnd Alþingis vísi frumvarpinu til baka til ríkisstjórnar sem verði gert að vinna það ásættanlega og þá í samráði við verkalýðshreyfinguna, líkt og hefð er fyrir þegar um vinnumarkaðstengd réttindi er að ræða. Að þvinga í gegn breytingar á atvinnuleysistryggingum án slíks samráðs skapar hættulegt fordæmi til framtíðar, segir í umsögn VR.
Sjá umsögn VR í heild sinni hér.
Ísland eftirbátur Norðurlanda
Landssamband íslenzkra verzlunarmanna segir í umsögn sinni, líkt og ASÍ, nauðsynlegt að horfa á heildarmyndina þegar gerður er samanburður við hin Norðurlöndin og ekki dugi að horfa eingöngu á tímabil og upphæð atvinnuleysisbóta. Horfa verði á heildarútgjöld til atvinnuleitenda og þess stuðnings og ráðgjafar sem þeir njóta í atvinnuleit og það muni halla enn meir á Ísland í þeim samanburði verði þetta frumvarp samþykkt.
ASÍ sakar stjórnvöld um yfirgang
Alþýðusamband Íslands sendi einnig frá sér umsögn um frumvarpið þar sem þessum breytingum er mótmælt kröftuglega. ASÍ sakar ríkisstjórnina um yfirgang og krefst þess að jafnframt frumvarpið verði dregið til baka.