Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
                    
                Almennar fréttir - 23.03.2020
VR óskar eftir orlofshúsum
VR óskar eftir vönduðum sumarhúsum eða orlofsíbúðum á leigu til framleigu fyrir félagsmenn sína. Leitað er eftir húsnæði á landsbyggðinni fyrir næsta sumar.
Áhugasamir sendi upplýsingar á vr@vr.is fyrir 8. apríl 2020. Nauðsynlegt er að góðar ljósmyndir og lýsing á umhverfi fylgi með.
Öllum tilboðum verður svarað.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja tilboði:
- Lýsing á eign og því sem henni fylgir
 - Ástand íbúðar og staðsetning
 - Stærð, fjöldi svefnplássa og byggingarár
 - Lýsing á möguleikum til útivistar og afþreyingar í næsta nágrenni