Almennar fréttir - 27.10.2025
VR óskar eftir orlofshúsum
VR óskar eftir vönduðum sumarhúsum eða orlofsíbúðum á leigu til framleigu fyrir félagsfólk sitt. Við leitum að húsnæði á landsbyggðinni fyrir næsta sumar.
Áhugasöm sendi upplýsingar á vr@vr.is fyrir 30. nóvember 2025.
Öllum tilboðum verður svarað.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja tilboði:
- Ljósmyndir og lýsing á eign og því sem henni fylgir.
- Ástand eignar og staðsetning.
- Stærð, fjöldi svefnplássa og byggingarár.
- Lýsing á möguleikum til útivistar og afþreyingar í næsta nágrenni.