Vefspjall
Hleður upp...

Aðalfundur VR 2026

Aðalfundur VR verður haldinn miðvikudaginn 25. mars 2026 kl. 19:30 í salnum Háteig á Hótel Reykjavík Grand. Fundurinn fer fram bæði sem staðfundur og fjarfundur í senn. 

Félagsfólk sem ætlar að sækja fundinn verður að skrá sig fyrirfram á vef VR fyrir kl. 12:00 á hádegi á fundardegi og skrá sig annað hvort á stað- eða fjarfund.

Túlkun á ensku verður einungis í boði á Teams. Félagsfólk sem þarfnast túlkunar á staðfundi, vinsamlega komið með viðeigandi búnað og heyrnartól. 

 

Smelltu hér til að skrá þig á fundinn

 

Þau sem eru skráð á fjarfund fá sendan hlekk á fundinn í tölvupósti. Ef upp koma tæknileg vandamál má hafa samband við tæknisíma VR í síma 820 1700.

Allar kosningar á fundinum verða ýmist með handauppréttingu eða rafrænar og fundargestir auðkenna sig inn á fjarfund með rafrænum skilríkjum. Mikilvægt er að öll sem mæta á fundinn hafi meðferðis viðeigandi búnað (tölvu eða snjalltæki) til þess að geta tekið þátt í kosningum. Ef félagsfólk lendir í tæknilegum vandræðum er hægt að hafa samband í síma 820 1700 frá kl. 19:00. Við hvetjum fólk til að skrá sig tímanlega á fjarfundinn.


Dagskrá aðalfundar

  1. Kosinn fundarstjóri.
  2. Kosinn ritari.
  3. Skýrsla stjórnarinnar um störf félagsins undanfarið starfsár.
  4. Reikningar félagsins fyrir liðið ár lagðir fram til samþykktar.
  5. Tillaga stjórnar um framlag í VR varasjóð.
  6. Lagabreytingar.
  7. Reglugerðabreytingar.
  8. Lýst kjöri stjórnar og trúnaðarráðs.
  9. Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarstofu og tveggja félagslega kjörinna skoðunarmanna.
  10. Ákvörðun félagsgjalds.
  11. Ákvörðun um laun stjórnarmanna og skoðunarmanna.
  12. Önnur mál.

Fundargögn

Ársreikningur og önnur fundargögn verða birt viku fyrir fundinn.

Hlekkur á lög VR