Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
44518879_10210296356885857_2133225430319104000_o.jpg

Almennar fréttir - 23.10.2018

Skrifstofur VR loka kl. 14:55 á morgun

Félagsmenn vinsamlega athugið að skrifstofur VR loka kl. 14:55 á morgun, 24. október, vegna kvennafrídagsins. Á þetta einnig við um skrifstofur félagsins á landsbyggðinni, þ.e. í Vestmannaeyjum, á Selfossi, Egilsstöðum og Akranesi.

Konur eru hvattar til að leggja niður vinnu kl. 14:55 og fylkja liði á samstöðufundi sem hafa verið skipulagðir víða um land. Nánari upplýsingar má finna á vef Kvennafrídagsins, kvennafri.is.

Samstöðu- og kröfufundur verður haldinn á Arnarhóli kl. 15:30 undir kjörorðunum Breytum ekki konum – breytum samfélaginu!
Nánari upplýsingar um dagskrá fundarins má sjá á Facebooksíðu Kvennafrís, facebook.com/kvennafri

#kvennafri #göngumút