Almennar fréttir - 05.06.2025
Tjaldsvæði VR opnar
Tjaldsvæði VR í Miðhúsaskógi opnar 6. júní næstkomandi. Hægt er að bóka stæði á orlofsvef á vef VR, vr.is.
Til að bóka stæði, veljið flipann „Framboð“. Þar undir er fellilisti þar sem valinn er landshluti eða svæði og er tjaldsvæðið merkt „Tjaldsvæði Miðhúsaskógi“. Verð fyrir nótt með rafmagni á hvert stæði er 4.000 kr.
Aldurstakmark til að bóka tjaldstæði er 20 ár, miðað er við árið sem VR félagi verður 21 árs.
Tjaldsvæðið er aðeins ætlað félagsfólki VR og fjölskyldum þeirra en félagsfólk getur boðið gesti/gestum að dvelja með sér á tjaldsvæðinu, þó aldrei meira en sem samsvarar einu tjaldstæði. Heimilt er að hafa gæludýr á tjaldsvæðinu. Hámarksdvöl á tjaldsvæðinu er tíu dagar.
VR félagar geta tekið á leigu tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi eða húsbíla af viðurkenndum leiguaðilum og fengið niðurgreiðslu frá VR gegn framvísun kvittunar. Niðurgreiðslan er 5.000 kr. per. nótt en þó að hámarki 30.000 kr. fyrir hvert orlofstímabil. Greitt er eftir að dvöl lýkur gegn fullri greiðslu fyrir vagninn, leigutímabil þarf að koma fram á kvittun.