Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Midhusaskogur_37.jpg

Almennar fréttir - 28.12.2018

Opnað fyrir bókanir orlofshúsa 8. janúar kl.19:00

Opnað verður fyrir bókanir á orlofshúsum VR árið 2019 og fram á mitt ár 2020 sem hér segir:

Þriðjudaginn 8. janúar 2019 kl. 19:00 verður opnað fyrir bókanir orlofshúsa sumarið 2019 (tímabilið 31. maí til 30. ágúst), fyrir þá sem ekki hafa leigt orlofshús undanfarin þrjú sumur.

Fimmtudaginn 10. janúar 2019 kl. 10:00 verður opnað fyrir bókanir orlofshúsa fyrir þá sem leigðu orlofshús sumarið 2016, 2017 eða 2018.

Þriðjudaginn 15. janúar 2019 kl. 10:00 verður opnað fyrir bókanir sem ná yfir tímabilið 31. ágúst 2019 til 31. maí 2020.

Skrifstofa VR í Reykjavík verður opin að kvöldi 8. janúar frá kl. 18:50- 20:00 og geta þeir félagsmenn, sem ekki bóka á vefnum, komið á skrifstofu félagsins til að bóka. Þá verður einnig tekið við bókunum í síma 510 1700 frá kl. 19:00 þann sama dag.

Á orlofsvef VR er að finna allar upplýsingar um orlofshús VR og tímabil. Til að bóka og greiða fyrir orlofshús eða aðra orlofsþjónustu VR þarf að skrá sig inn á Mínar síður. Hægt er að skrá sig með Íslykli eða rafrænum skilríkjum.

Vakin er athygli á því að frá og með 1. júní 2019 munu orlofshúsum VR þar sem dýrahald er leyft, fjölga og verða þau því orðin 19 talsins. Sjá nánar hér.