Fréttir og greinar
September án niðurstöðu
Snemma í mars sl. varð ljóst að forsendur kjarasamninga væru ekki eins líklegar til að halda og almennt hafði verið talið. Verðbólga var á uppleið. Gjaldskrár hins opinbera höfðu hækkað, verðhækkanir fyrirtækja voru svo gott sem daglegt brauð og ekkert bólaði á langþráðri tiltekt í húsnæðismálum, sem eru stærsti orsakavaldur verðbólgunnar.
Fjármálaráðherra gegn fólkinu - Ályktun frá VR, LÍV og Fagfélögunum
VR, LÍV og Fagfélögin gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra í viðtali við Vísi. Þar lýsir ráðherrann gagnrýni á skatta- og gjaldahækkanir ríkisstjórnarinnar sem kröfu um „skammtímaábata“ á kostnað langtímahagsmuna samfélagsins.
Hvað ætlið þið að gera?
Þegar kjarasamningar voru undirritaðir tók launafólk mikla áhættu með því að fallast á lágar launahækkanir á verðbólgutímum. Á móti ætluðu fyrirtæki að halda aftur af verðhækkunum til að ná niður verðbólgu og vöxtum. En verð hefur hækkað látlaust og vextir eru svimandi háir. Forsendur kjarasamninga eru brostnar og þeir gætu losnað 8. október nk.
Ályktun stjórnar VR: Ríkistjórnin nær núlli á kostnað launafólks
Stjórn VR lýsir yfir þungum áhyggjum af fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem, að óbreyttu, dregur úr líkum á að kjarasamningar á almennum vinnumarkaði geti haldið gildi sínu. Stjórnin krefst þess að ríkisstjórnin og Alþingi endurskoði frumvarpið með hagsmuni launafólks að leiðarljósi, dragi úr fyrirhuguðum álögum á heimilin, frysti opinberar gjaldskrár og leggi fram raunverulegar aðgerðir til að ná niður verðbólgu og vöxtum.
Verðbólgan í ágúst 2026
Á fimmtudaginn, 27. ágúst, þegar mæling vísitölu neysluverðs var birt, varð endanlega ljóst að forsendur kjarasamninga eru fallnar. Verðbólga í ágúst stendur í 5,6% en forsendur kjarasamninga kváðu á um að hún yrði 4,7% eða lægri.
Seðlabankastjóri og stríðsöxin
Þegar peningastefnunefnd Seðlabankans kynnti ákvörðun sína um þriðju vaxtahækkunina á þessu ári vísaði hún einkum í tvær orsakir þess að verðbólga hafi aukist. Orðrétt segir í yfirlýsingunni: „Aukning mældrar verðbólgu hefur fyrst og fremst litast af hækkun opinberra gjalda og áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum“. Svo mörg voru þau orð.
Stýrivextir í kastljósinu á opnum fundi VR, LÍV og Fagfélaganna
Fjölmenni var á opnum fundi VR, LÍV og Fagfélaganna um samspil stýrivaxta og verðbólgu miðvikudaginn 19. ágúst. Ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að hækka stýrivexti í 8%, sem tilkynnt var skömmu áður en fundurinn hófst, setti svip sinn á hann og umræður þátttakenda. Fundinum var jafnframt streymt á visir.is og mbl.is.
VR skipar viðræðunefnd
Stjórn VR samþykkti á fundi sínum þann 13. ágúst að skipa viðræðunefnd vegna kjaraviðræðna sem standa fyrir dyrum í haust.
Í henni sitja Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, Birgitta Ragnarsdóttir, Jónas Yngvi Ásgrímsson og Tómas Gabríel Benjamín. Enn fremur samþykkti stjórn að bjóða fulltrúa Landssambands ísl. verzlunarmanna aðild að nefndinni.
Vanræksla fyrirtækja og stjórnvalda leiðir til forsendubrests kjarasamninga
Stjórn VR lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðunni á vinnumarkaði nú þegar ljóst er að forsendur kjarasamninga munu bresta. Stjórn lýsir sig reiðubúna til lausnamiðaðs samtals við stjórnvöld og Samtök atvinnulífsins með það fyrir augum að kjarasamningar geti haldið. En komi ekkert annað til telur stjórn VR uppsögn kjarasamninga óhjákvæmilega.