Vefspjall
Hleður upp...

Fréttir og greinar

27.05.2026

Við krefjumst þess að bankarnir dragi vaxtahækkanir til baka

VR, LÍV og Fagfélögin fordæma vaxtahækkanir viðskiptabankanna sem tilkynntar voru fyrir helgi. Viðskiptabankarnir skiluðu hátt í 100 milljarða króna hagnaði á síðasta ári eftir skatta. Það samsvarar yfir 320 þúsund krónum á hvern fullorðinn landsmann. Þarna er svigrúm og þarna liggur samfélagsleg ábyrgð bankanna. Bankarnir eiga að taka á sig hluta af byrðum efnahagsástandsins.

Smelltu hér til að lesa

20.05.2026

Stýrivextir hækka og allir eru að græða – nema þú

Á sama tíma og Seðlabankinn hækkar stýrivexti vegna þrálátrar verðbólgu berast tölurnar úr ársfjórðungsuppgjöri bankanna. Samanlagður hagnaður viðskiptabankanna og Kviku er tæpir 30 milljarðar króna. Hagnaðurinn hefur aukist um þriðjung milli ára og hreinar vaxtatekjur um 29%. Þessar fyrirsagnir eru svo gott sem hættar að vekja furðu.

Smelltu hér til að lesa

07.05.2026

Breytingar á leikskólum kalla á breyttan vinnutíma

Niðurstöður nýrrar könnunar VR sýna að breytingar sem gerðar hafa verið á leikskólastiginu hafa haft mikil áhrif á daglegt líf margra fjölskyldna innan félagsins . Könnunin sýnir jafnframt að fjárhagsleg staða barnafólks er í mörgum tilfellum þung —  um þriðjungur svarenda segir erfitt fyrir heimilið að ná endum saman.  

Smelltu hér til að lesa

01.05.2026

Fyrirtæki og stjórnvöld - þið eigið leik

Alþjóðlegur baráttudagur launafólks er runninn upp! Um allan heim safnast launafólk saman, fagnar sigrum fortíðar og skerpir á kröfum til framtíðar. Hér á landi eru haldnir baráttufundir víða um land þar sem launafólk sýnir fram á mátt samstöðunnar. Ljóst er að ástand efnahagsmála verður ofarlega á baugi.

Smelltu hér til að lesa

30.04.2026

Við krefjumst!

VR, LÍV og Fagfélögin hafa tekið höndum saman og ávarpa stjórnvöld, sveitarfélögin og fyrirtækin í landinu í nýrri auglýsingaherferð. Allt stefnir í að kjarasamningar losni í haust, með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Launafólk hefur borið hitann og þungan af þrálátri verðbólgu, háum stýrivöxtum og vaxandi atvinnuleysi. Allt hækkar og hækkar – og launafólk fær ekki rönd við reist.

Smelltu hér til að lesa