Fréttir og greinar
Verðbólgan í ágúst 2026
Á fimmtudaginn, 27. ágúst, þegar mæling vísitölu neysluverðs var birt, varð endanlega ljóst að forsendur kjarasamninga eru fallnar. Verðbólga í ágúst stendur í 5,6% en forsendur kjarasamninga kváðu á um að hún yrði 4,7% eða lægri.
Seðlabankastjóri og stríðsöxin
Þegar peningastefnunefnd Seðlabankans kynnti ákvörðun sína um þriðju vaxtahækkunina á þessu ári vísaði hún einkum í tvær orsakir þess að verðbólga hafi aukist. Orðrétt segir í yfirlýsingunni: „Aukning mældrar verðbólgu hefur fyrst og fremst litast af hækkun opinberra gjalda og áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum“. Svo mörg voru þau orð.
Stýrivextir í kastljósinu á opnum fundi VR, LÍV og Fagfélaganna
Fjölmenni var á opnum fundi VR, LÍV og Fagfélaganna um samspil stýrivaxta og verðbólgu miðvikudaginn 19. ágúst. Ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að hækka stýrivexti í 8%, sem tilkynnt var skömmu áður en fundurinn hófst, setti svip sinn á hann og umræður þátttakenda. Fundinum var jafnframt streymt á visir.is og mbl.is.
VR skipar viðræðunefnd
Stjórn VR samþykkti á fundi sínum þann 13. ágúst að skipa viðræðunefnd vegna kjaraviðræðna sem standa fyrir dyrum í haust.
Í henni sitja Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, Birgitta Ragnarsdóttir, Jónas Yngvi Ásgrímsson og Tómas Gabríel Benjamín. Enn fremur samþykkti stjórn að bjóða fulltrúa Landssambands ísl. verzlunarmanna aðild að nefndinni.
Vanræksla fyrirtækja og stjórnvalda leiðir til forsendubrests kjarasamninga
Stjórn VR lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðunni á vinnumarkaði nú þegar ljóst er að forsendur kjarasamninga munu bresta. Stjórn lýsir sig reiðubúna til lausnamiðaðs samtals við stjórnvöld og Samtök atvinnulífsins með það fyrir augum að kjarasamningar geti haldið. En komi ekkert annað til telur stjórn VR uppsögn kjarasamninga óhjákvæmilega.
Langvarandi vaxtaverkir - Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu
Í tæplega fjögur ár hafa stýrivextir verið mjög háir á Íslandi með það að markmiði að draga úr verðbólgu. Það hefur ekki gengið eftir, undanfarið ár hefur verðbólgan þvert á móti hækkað. Háir stýrivextir koma harðast niður á þeim sem skulda, þeim sem leigja og ekki síst barnafólki. Nú er tímabært að staldra við og skoða hvort þessi stefna þjóni tilgangi sínum.
Sumar án aðgerða
Á meðan athygli stjórnmálamanna og kjósenda beinist að þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB tikkar klukkan á vinnumarkaði. Þann 27. ágúst nk. verður vísitala neysluverðs birt og ársverðbólga mun mælast svo há að forsendur kjarasamninga bresta. Mánuðum saman hefur verkalýðshreyfingin kallað eftir aðgerðum og viðbrögðum frá bæði stjórnvöldum og fyrirtækjum, en án árangurs.
Aðgerðaleysi eykur líkur á að kjarasamningum verði sagt upp
Um langa hríð hefur því verið haldið á lofti hér á landi að verðbólgu megi að stofninum til rekja til launahækkana. Sagan er nokkuð einföld og auðskiljanleg: þegar laun hækka þurfa fyrirtækjaeigendur að hækka verð og verðhækkanir leiða til verðbólgu. Við einföldum vandamálum eru einfaldar lausnir og því mætti komast hjá verðbólgu með því að sporna gegn launahækkunum, eða jafnvel lækka laun. En er þetta svo einfalt í raun?
Hækkanir launa hafa lítil áhrif á verðbólgu
Mikill áhugi var á morgunverðarfundi VR, LÍV og Fagfélaganna sem haldinn var í sal Fagfélaganna á Stórhöfða 31 þann 11. júní. Yfirskrift fundarins var „Eggið eða hænan?“ Þar var fjallað um samspil verðbólgu, verðlags og launa á tímum þegar blikur eru á lofti í efnahagsmálum og margt bendir til að forsendur núgildandi kjarasamninga bresti við endurskoðun samningana í haust.
Eggið eða hænan? Takið daginn frá! Opinn fundur um verðbólgu, verðlag og laun 11. júní
Blikur eru á lofti í efnahagsmálum og allt bendir til þess að forsendur kjarasamninga bresti í haust. Verðbólga hefur farið vaxandi, atvinnuleysi aukist og stýrivextir hækkað. Drifkraftar verðbólgu eru margir og samsetning hennar flókin en eigi að nást árangur í baráttunni er mikilvægt að auka skilning á eðli og orsökum hennar.