Hvernig geta fyrirtæki tekið þátt?

Aðeins fyrirtæki sem tryggja öllum starfsmönnum tækifæri til að taka þátt í könnun VR koma til greina í valinu á Fyrirtæki ársins. Skráning fer fram þannig að fyrirtæki senda upplýsingar til VR (steinunn@vr.is) í síðasta lagi 24. janúar 2020.

1. Kennitölur, nöfn, tölvupóstföng og farsímanúmer allra starfsmanna – bæði VR félaga og annarra starfsmanna.
Sendið upplýsingarnar í læstu Excelskjali á netfangið steinunn@vr.is og lykilorð og nafn fyrirtækis með smsi í farsíma 820 1730 (Steinunn Böðvarsdóttir, starfsmaður VR). Einnig má senda upplýsingarnar beint til Gallup. Tómas Bjarnason hjá Gallup gefur frekari upplýsingar varðandi þá tilhögun (tomas.bjarnason@gallup.is). Könnunin kann að vera send í farsímanúmer þátttakenda, ef ekki næst í þá með öðrum hætti, og því mikilvægt að farsímanúmer fylgi. Einnig er það nauðsynlegt ef starfsfólk er ekki með netfang. 

2. Nafn og kennitölu fyrirtækis.

Senda þarf lista þó allt starfsfólk fyrirtækis sé í VR því þannig er þátttaka fyrirtækisins í valinu á Fyrirtæki ársins 2020 tryggð. Rafrænir spurningalistar verða sendir út á íslensku, ensku og pólsku. Gallup sér um framkvæmd könnunarinnar og úrvinnslu niðurstaðna.

Hvernig er trúnaður tryggður skv. persónuverndarlögum?

Fyrirtæki senda starfsmannalista í læstu skjali til VR og lykilorð í sérstökum pósti eða eftir öðrum leiðum, t.d. sms til umsjónaraðila könnunarinnar hjá VR. VR sendir gögnin áfram til vinnsluaðila könnunarinnar, Gallups en VR og Gallup hafa undirritað vinnslusamning um könnun félagsins á Fyrirtæki ársins í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Heimild VR til könnunar á Fyrirtæki ársins og heimild Gallup til vinnslu gagnanna byggir á lögum nr. 90/2018 um hagsmunavörslu stéttarfélags fyrir hönd félagsmanna sinna. Félagsmenn og starfsmenn þeirra vinnustaða sem taka þátt í könnuninni fá tækifæri til að koma skoðunum sínum á framfæri til stjórnenda svo hægt sé að gera viðeigandi úrbætur á starfsumhverfinu, ef þörf krefur. Upplýsingar sem óskað er eftir frá fyrirtækjum eru fengnar í málefnalegum tilgangi og ekki umfram það sem nauðsynlegt er fyrir tilgang vinnslunnar.

Nánari upplýsingar veita Steinunn Böðvarsdóttir hjá VR og Tómas Bjarnason hjá Gallup.