Bjarni Þór Sigurðsson

Fæðingardagur og -ár
4. september 1958

Félagssvæði
Reykjavík og nágrenni

Vinnustaður, starf og menntun
Ég starfa á hagfræði- og greiningarsviði ASÍ að húsnæðismálum. Þessi málaflokkur, húsnæðismál, hefur lengi verið mér hugleikinn og ég hef komið að uppbyggingu Bjargs íbúðafélags sem og leigufélagsins Blævar. Ég starfaði áður sem deildarstjóri vöruþróunar hjá miðlum Sýnar og Vodafone. Ég starfaði við fjölmiðla í 12 ár, lengst af sem verkefnastjóri hjá vefmiðlinum Vísi en áður vann ég meðal annars fyrir RÚV. Þar áður var ég sjálfstætt starfandi í kvikmyndagerð en ég nam kvikmyndagerð í París og hef lokið BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.

Netfang
bjarnithor@me.com

Facebook
Bjarni Þór Sigurðsson


Reynsla af félagsstörfum

Ég hef verið félagi í VR á þriðja áratug. Ég var kjörinn í trúnaðarráð VR árið 2009, var trúnaðarmaður hjá 365 miðlum í nokkur ár og varamaður í stjórn VR á árunum 2010-2012. Ég hef setið í stjórn VR frá árinu 2012 og var varaformaður VR á árunum 2013 til 2017. Ég hef sinnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir VR. Ég hef setið í stjórn Bjargs íbúðarfélags frá stofnun þess árið 2016 og í stjórn Lífeyrisjóðs verslunarmanna frá 2019. Í dag sit ég í nokkrum nefndum fyrir VR. Þar má nefna jafnréttisnefnd, framtíðarnefnd og launanefnd VR auk þess hef ég verið formaður húsnæðisnefndar VR frá 2012. Ég er varamaður í stjórn Landssambands verslunarmanna og hef verið fulltrúi verslunarmanna í miðstjórn ASÍ. Ég hef einnig starfað að málefnum Reykjavíkurborgar, m.a. setið í stjórn ÍTR og í hverfaráði Vesturbæjar.


Helstu áherslur

Með tæknibreytingum sem nú eru að eiga sér stað verða miklar breytingar á störfum félagsfólks VR. Það er brýnt að leggja áherslu á endurmenntun og að gerð verði krafa um aukin tækifæri til starfs- og endurmenntunar. Í störfum mínum í framtíðarnefnd VR hef ég lagt áherslu á þessi mál sem og þau málefni sem tengjast réttlátum umskiptum vegna tækniframfara og innleiðingu gervigreindar. Huga þarf sérstaklega að álögur sem leggjast á launafólk þegar kemur að aðgerðum vegna loftslagsmála verði skipt réttlátt en leggist ekki á launafólk með meiri þunga en tilefni er til. Þetta er, að mínu mati, okkar stærsta sameiginlega áskorun til að tryggja hagsæld til framtíðar fyrir okkur í VR. Áherslur á lýðræðisvæðingu og aðkomu launafólks í ákvarðanatöku eru jafnframt afar mikilvægar til þess að tryggja að horft sé til hagsmuna launafólks og samfélagsins alls, en ekki einvörðungu fjárfesta sem mögulega horfa eingöngu til skammtíma gróðavonar. Það er engin tilviljun að ég legg þessa miklu áherslu á réttlát umskipti, því það er meginverkefni VR að verja réttindi VR félaga í þeim breytingum sem við nú göngum í gegnum.

Ég tel að huga þurfi að málefnum eldra félagsfólks í VR. Mögulegir aldursfordómar á vinnumarkaði, húsnæðismál eldri félagsmanna, lífeyrismál og skerðingar eru dæmi um mál sem huga þarf að sérstaklega þegar kemur að eldra félagsfólki í VR. VR hefur verið í fararbroddi þegar kemur að eldra félagsfólki og í starfi mínu sem stjórnarmaður í VR hef ég til að mynda komið að gerð húsnæðiskönnunar VR, sem er fyrirmyndarverkefni og mun leggja grunn að áherslum VR í húsnæðismálum, ekki bara fyrir eldra félagsfólk, heldur líka alla félaga í VR. VR varð líka fyrst stéttarfélaga til þess að móta áherslur sem snúa beint að hagsmunum eldri félaga í VR í aðdraganda kjaraviðræðna 2022 og sem voru síðan lagðar fram inn í þær kjaraviðræður sem nú eru í gangi. Ég legg á það áherslu að VR haldi þessu frumkvæði gagnvart hagsmunum eldri félaga.

Með frumkvæði verkalýðshreyfingarinnar, ekki síst VR, hefur grettistaki verið lyft með stofnun Íbúðafélagsins Bjargs. Bjarg hefur nú þegar byggt um 1000 íbúðir. Með tilkomu Bjargs hófst nýr kafli óhagnaðardrifinna leigufélaga á Íslandi og kominn er vísir að öflugu almennu húsnæðisfélagi að norrænni fyrirmynd.

Enn annar mikilvægur áfangi var stiginn síðastliðið haust þegar Blær leigufélag hóf framkvæmdir við 36 íbúðir í Úlfársdal og verða þær afhentar til leigu um næstu áramót. Þar með er formlega hafinn nýr áfangi í sögu verkalýðshreyfingarinnar.

Ég tel að jafnvægi á húsnæðismarkaði þurfi að vera til staðar á milli leigu- og eignahúsnæðis og huga þurfi sérstaklega að fyrstu kaupendum sem og eldra fólki sem hefur áhuga á að minnka við sig.

Byggja þarf upp fjölbreyttan eigna-og leigumarkað og endurvekja félagslegt eignaíbúðakerfi. Ég hef verið í forystu um þennan málflokk innan VR og er verkefnið mitt hjartans mál. Ég tel að markvisst þurfi að byggja upp fjölbreyttan húsnæðismarkað hér á landi. Þar á ég við sterkt kerfi leiguíbúða í almenna íbúðakerfinu sem Bjarg fellur undir og leigukerfi og hugmyndafræði sem Blær byggir á. Með því móti fæst nauðsynlegt aðhald fyrir félög sem rekin eru á markaðslegum forsendum og félög á borð við Hemstaden og Alma starfi ekki á markaði þar sem ríkir skortur og sem endurspeglar hátt húsnæðisverð. Heilbrigt húsnæðiskerfi þarf að innihalda öll möguleg form af búsetuúrræðum, s.s. félagslegar leiguíbúðir, hagkvæmar leiguíbúðir í almenna íbúðakerfinu eins og Bjarg, sem og séreignakerfi eins og algengast er á Íslandi og einnig félagslegar eignaíbúðir. Endurvekja þarf félagslega eignaíbúðakerfið sem flestir kannast við sem verkamannabústaðakerfið, en var illu heilli aflagt upp úr 1990.

Ég hef verið í forystu innan VR þegar kemur að húsnæðismálum og er verkefnið mitt hjartans mál. Ef einhver vill fá nánari upplýsingar þá endilega sendið mér tölvupóst á bjarnithor@me.com. Greinar um húsnæðismál sem ég hef skrifað um húsnæðismál er m.a. að finna í 2. tbl. VR blaðsins frá 2023 og um Bjarg og Blæ í 1. tbl. VR blaðsins frá 2023.

Ég er viss um að reynsla mín mun nýtast félaginu. Ég óska um stuðning til að halda þessu góða starfi áfram.