Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
mynd.jpg

Almennar fréttir - 12.03.2018

Kosningu til stjórnar VR lýkur á morgun

Um kl. 9:00 í morgun, þann 12. mars 2018, höfðu alls 2.010 félagsmenn VR kosið í allsherjaratkvæðagreiðslu til stjórnar VR fyrir kjörtímabilið 2018 til 2020 en hún hófst kl. 9:00 að morgni 6. mars. Á kjörskrá er 34.979 félagsmaður. Atkvæðagreiðslunni lýkur kl. 12:00 á hádegi á morgun, 13. mars.

Við hvetjum félagsmenn til að kynna sér frambjóðendur og nýta atkvæðisrétt sinn. Atkvæðagreiðsla er rafræn, sjá hér aðgang að atkvæðaseðli og nánari upplýsingar um frambjóðendur.