Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Kosningar2020

Almennar fréttir - 09.03.2020

Kosning til stjórnar VR 2020 - 2022

Allsherjaratkvæðagreiðsla meðal félagsmanna VR vegna kjörs til sjö sæta í stjórn VR, skv. 20 gr. laga félagsins, hófst í dag kl. 09:00, mánudaginn 9. mars, og lýkur kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 13. mars. Atkvæðagreiðslan er rafræn, smelltu hér fyrir nánari upplýsingar.

Valið er milli 13 frambjóðenda til stjórnar VR. Merkja skal við mest 7 frambjóðendur í stjórnarkosningum.

Hvernig þú kýst stjórn VR

  1. Smelltu á „Kosið um stjórn VR 2020 - 2022".
  2. Skráðu þig inn með Íslykli eða rafrænum skilríkjum.
  3. Atkvæðaseðill opnast með upplýsingum um hvernig þú átt að kjósa.

Ef þú hefur ekki Íslykil eða rafræn skilríki sækir þú um á island.is.

Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast hér eða með því að hringja á skrifstofu félagsins í síma 510 1700.

Smelltu hér til að sjá nánari upplýsingar
og smelltu hér til að sjá lista yfir frambjóðendur.

Kjörstjórn VR