Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
covermynd facebook.png

Almennar fréttir - 30.11.2018

Síðustu vinningshafarnir dregnir út

Síðustu þrjá mánuði hefur VR staðið fyrir átaki í skráningu á upplýsingum á Mínum síðum í tengslum við könnun á launum félagsmanna. Fjórir félagsmenn sem skráðu starfsheiti sitt og vinnutíma voru dregnir út í september og aðrir fjórir í október og fengu allir glæsilega vinninga.

Síðustu vinningshafarnir voru dregnir út í gær, tveir fengu gjafabréf út að borða fyrir 20.000 krónur á Grill-,Fisk- eða Skelfiskmarkaðnum og tveir gjafabréf frá Icelandair að upphæð 50.000 kr. VR óskar öllum vinningshöfunum tólf til hamingju!

Ert þú búinn að skrá þig?

Aukin áhersla hefur verið lögð á að efla launaupplýsingar til félagsmanna á Mínum síðum og setja allan launasamanburð fram á auðveldan og skiljanlegan hátt. Með því að skrá starfsheiti og vinnutíma á Mínum síðum geta félagsmenn skoðað meðaltal launa í sinni starfsstétt og borið saman við sín eigin laun.
Við hvetjum félagsmenn til að skrá starfsheiti sitt og vinnutíma á Mínar síður og skoða eigin stöðu.
Sjá nánari upplýsingar hér.